Þetta sýnir ný könnun um fólk með háskóla·menntun.
Flestir í þessum hóp búa í sínu eigin húsnæði.
Fólkið er með lán í banka fyrir húsnæðinu.
En margir þurftu hjálp til að kaupa húsnæðið.
60 af hverjum 100 sem eru yngri en 45 ára fengu hjálp.
Hjálpin kom ekki frá banka.
Hjálpin kom til dæmis frá fjölskyldu.
Fólk sem fær ekki hjálp frá fjölskyldu á erfiðara.
Það á erfiðara með að kaupa sér húsnæði.
Margt fólk með háskóla·menntun vinnur mjög mikið.
37 af hverjum 100 vinna meira en fulla vinnu.
Fólk vinnur svona mikið til að geta átt húsnæði.
Fólk sem þarf að borga af námslánum á líka erfiðara.
Námslánin stoppa samt ekki fólk í að kaupa húsnæði.
En fólk safnar eignum hægar vegna námslána.
Hverjir eiga erfiðast með að borga fyrir húsnæði?
Fólk með litlar tekjur.Fólk sem borgar af námslánum.Fólk sem á börn.