RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,1°C
Stykkishólmur: 5,4°C
Ísafjördur: 6,7°C
Blönduós: 5,3°C
Akureyri: 6,6°C
Egilsstadir: 4,9°C
Höfn: 5,6°C
Selfoss: 3,8°C
Hveravellir: 0,4°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Blaðamenn tékkneska ríkisútvarpsins í verkfalli

Starfsmenn tékkneska ríkisútvarpsins ?eská televize fóru í verkfall í dag til að mótmæla áformum ríkisstjórnar landsins um að gjörbreyta því hvernig fjölmiðillinn er fjármagnaður. Margir telja að breytingin muni ógna sjálfstæði hans.

Abc news greinir frá þessu.

Ef áformin verða samþykkt verður ríkisútvarp landsins fjármagnað af fjárlögum ríkisins í stað gjalda frá einstaklingum, heimilum og fyrirtækjum eins og fyrirkomulagið er í dag. Fjölmiðillinn fengi um 15% minna fé með nýja fyrirkomulaginu en hann fær nú, sem gæti leitt til uppsagna starfsfólks, takmarkaðrar framleiðslu og niðurfellingar dagskrárliða.

Gagnrýnendur segja að breytingarnar myndu greiða leið ríkisstjórnarinnar til að ná stjórn á fjölmiðlunum. Andrej Babi? forsætisráðherra Tékklands er forsprakki áformanna.

Fordæmalaust verkfall

Verkfallið er fordæmalaust í sögu tékkneskra almannaþjónustumiðla, segir Michal Kubal, fréttastjóri tékkneska ríkisútvarpsins.

Þúsundir mótmælenda söfnuðust saman í miðborg Prag í dag til að krefjast þess að ríkisstjórnin dragi til baka fyrirhugað lagafrumvarp og efni til ítarlegrar og gagnsærrar opinberrar umræðu um málið.

Þegar Tékkar kveiktu á sjónvarpsstöð ríkisútvarpsins í dag stóð á skjánum: ,,Við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að við getum áfram veitt almannaþjónustu í fullu umfangi og gæðum í framtíðinni."

Í útvarpinu var að mestu spiluð tónlist en inn á milli var verkfallið útskýrt og í kjölfarið mínútu þögn.

03.11.2026 22:20


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001182
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.