RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Ný stjarna fædd

Andreas Almgren er 31 árs Svíi sem hóf ferilinn sem 800 metra hlaupari og keppt á EM í frjálsíþróttum í þeirri grein árið 2014 og á HM ári síðar. Svo gufaði hann hins vegar upp á stórmótum þar til árið 2022 að hann kom á EM og varð fjórði í 5000 metra hlaupi. Hann vann svo brons í 10.000 metra hlaupi á HM í fyrra og fylgdi því eftir á EM í Birmingham í ágúst með fáheyrðum yfirburðum í 10.000 metra hlaupinu.

Almgren hringaði alla keppendur á EM um mitt hlaupið og kom í mark langt á undan öllum öðrum og setti samt mótsmet. Hann bætti svo um betur þegar hann varð heimsmeistari í hálfu maraþoni í Kaupmannahöfn í september á 58 mínútum og sex sekúndum.

Svo ákvað hann að prófa að hlaupa heilt maraþon í fyrsta sinn um helgina í New York maraþoninu, einu stærsta hlaupi ársins. Þar skákaði hann hann fjölmörgum sterkum keppendum og kom 15 sekúndum á undan næsta manni í mark á tveimur klukkustundum, sex mínútum og einni sekúndu.

,,Ég gæti ekki beðið um betri frumraun. Ég gæti eiginlega grátið eftir þetta hlaup," sagði Almgren í viðtali við ESPN eftir sigurinn í maraþoninu. Hann sagðist jafnframt vera klár í að hlaupa fleiri maraþonhlaup. Andreas Almgren er í það minnsta nafn sem fólk ætti að leggja á minnið, þó alls óvíst sé að hvaða vegalengd hann mun einbeita sér á næstunni.

03.11.2026 21:39


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001177
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.