RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

,,Náum nýjum hæðum fyrir framan tónleikagesti"

Það eru tímamót hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands á nýju starfsári þar sem Barbara Hannigan, nýr aðalstjórnandi, stígur á svið.

Dagskráin er fjölbreytt með tónlist eftir Charles Ives, John Cage og Gustav Mahler auk þess sem hljómsveitin frumflytur nýtt verk, Undark, eftir Huga Guðmundsson staðartónskáld hljómsveitarinnar.

Djúp tenging við hljómsveitina

Barbara Hannigan er ein skærasta stjarnan í heimi sígildrar og samtímatónlistar. Þessi margverðlaunaða kanadíska listakona hefur í hartnær 40 ár frumflutt nýja tónlist og blásið lífi í eldri tónlist með bestu hljómsveitum heimsins, bæði sem söngkona og stjórnandi.

Í Klassíkinni okkar á föstudag var rætt við Hannigan um starfið hjá hljómsveitinni.

,,Að þau hafi valið mig og ég hafi valið þau eru tímamót," segir hún meðal annars í viðtalinu. Hún hefur síðastliðin fjögur unnið reglulega með hljómsveitinni og segist hafa djúpa tengingu við hana.

Tengingin snýr að listfengi, sköpun, hugmyndir okkar eru á sömu bylgjulengd og orkan líka. Einkum á tónleikum, þá náum við einhverjum nýjum hæðum fyrir framan tónleikagesti.

Tónleikarnir í kvöld bera nafnið Attacca! sem þýðir að verkin á dagskránni taka við hvert af öðru án hlés. Áheyrendur í sal fá jafnframt óvenjulegt tækifæri í verki Johns Cage til að kynnast því hvort til sé eitthvað sem heitir algjör þögn.

Sex ómissandi tónleikar

Barbara Hannigan stjórnar sex tónleikum með sinfóníuhljómsveitinni í vetur og segir að þessir fyrstu tónleikar verði mikilfenglegir.

Ég skipulegg alla tónleika þannig að þeir séu ómissandi. Þetta eru sex ómissandi tónleikar.

Tónleikarnir og þetta upphaf á samvinnu Barböru Hannigan og Sinfóníuhljómsveitar Íslands verður í beinni útsendingu á Rás 1 sem hefst með þættinum Á leið í tónleikasal klukkan sjö.

Hér fyrir neðan má sjá viðtal við Barböru Hannigan úr Klassíkinni okkar.

Barbara Hannigan stjórnar í kvöld tónleikunum sem aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónleikarnir verða í beinni útsendingu á Rás 1.

03.09.2026 17:11


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000135
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.