RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,3°C
Stykkishólmur: 4,9°C
Ísafjördur: 5,8°C
Blönduós: 5,6°C
Akureyri: 7,4°C
Egilsstadir: 7,8°C
Höfn: 7,3°C
Selfoss: 1,0°C
Hveravellir: 0,4°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Furðulegt háttalag púðluhunds um nótt

Sjöfn Asare skrifar:

Í Tjarnarbíói er sýningin Púðlusafnið sýnd og ber strax nafn með rentu. Áður en gengið er inn í salinn má líta postulínspúðluhundasafn sem annar höfundur sýningarinnar, Olga Sonja, erfði eftir ömmu sína. Safnið er þungamiðjan í sýningunni sem er allt í senn hugleiðing um minni og söknuð, barnæsku og móðurhlutverkið, hunda, fjölskyldur og arf af ýmsu tagi.

Höfundar og flytjendur sýningarinnar eru þær Olga Sonja Thorarensen og Salóme Sól Norðkvist. Leikstjórn er í höndum Köru Hergils Valdimarsdóttur og Andreu Elínar Vilhjálmsdóttur. Dramatúrg er Ásrún Magnúsdóttir og Ragnheiður Erla sér um tónlistina. Leikmynd og búningar eru hönnuð af Tönju Huld Levý Guðmundsdóttur og Alexíu Rós Gylfadóttur. Cristina Agueda sér um lýsinguna.

Við upphaf verksins standa tvær konur með bakið í áhorfendur. Þær eru klæddar náttsloppum og með handklæði á höfðum sér. Þær kynna sig og segja áhorfendum út á hvað sýningin gengur. Þær eru ekki í hlutverkum heldur eru þær þær sjálfar, Olga Sonja og Salóme Sól, systur sem eru að setja upp verk um ömmu sína og púðlusafnið hennar.

Áhorfendur fræðast um hvernig þær systur sáu ömmu sína sem börn - hvernig hún sveif um húsið og var alltaf fín, um hversu heitt hún elskaði hundana sína (bæði raunverulega hunda og púðlusafnið góða) og hversu gott þeim systrum fannst að vera heima hjá henni. Inn í þessa hugleiðingu um ömmu fléttar Olga Sonja upplifun sína af móðurhlutverkinu, en hún á tvö börn, það yngra aðeins fimm mánaða, og er mjög tilfinningalega hrá eftir fæðinguna. Þá talar hún um sorgina við að geta ekki hringt í ömmu sína og fengið ráð um móðurhlutverkið, um söknuð og væntumþykju.

Sýningin nýtir dans, texta, söng og vídjóverk til að fanga sérstakan töfraheim á mörkum veruleika, minninga og súrrealisma og hrífur áhorfanda með sér í ferðalag sem erfitt er að sjá fyrir hvar muni enda.

Sviðsmyndin er einföld en áhrifarík, það er svið í þremur pöllum með bleiku satínefni í kringum hvern pall, svo minnir á gamaldags rúm. Ljós eru nýtt til að draga augað til og skapa stemningu, og leikkonurnar tvær á sviðinu nýta sér hæðarmun pallanna til að auka vídd og sjónræna list verksins á áhrifaríkan hátt.

Í umfjöllun um verkið er tekið fram að það sé ekki eingöngu byggt á púðlusafninu góða heldur einnig á bókinni Nightbitch eða Nátttík eftir Rachel Yodler. Sú bók segir frá konu sem hefur nýlega átt sitt fyrsta barn, en fer að spretta dökkur feldur og telur sig breytast á nóttunni úr konu í tík. Nátttík. Sér áhorfandi tengslin milli bókar og sýningar vel, en Olga Sonja notar eigin barneignarferli í verkinu og skoðar líkamleika fæðinga og hvernig mannskepnan sem er svo oft aftengd náttúrunni og þeim sannleika að við séum dýr er þvinguð til að horfast í augu við eigin skepnueðli þegar fæðingar og brjóstagjöf eiga í hlut.

Á heildina er verkið sjónrænt flott og ég held að margir sem hafa gengið með og fætt börn eða átt maka í því ferli geti tengt tilfinningalega við verkið. Dansinn er sterkur og áhrifaríkur, þó mér finnist verkið stundum óþægilega kynferðislegt verandi leikið af tveimur systrum. Umbreyting systranna í hunda er mjög sterk og flott, og búningarnir eru gjörsamlega dásamlegir. Hárkollurnar eru sérlega flottar og ég var hrifin af því hvernig praktísk smáatriði eins og staðsetning hljóðnema voru vafin inn í heildarumgjörðina á snjallan hátt.

Ef ég á að kvarta yfir einhverju þá er það að leikritið endar á söngatriði á léttu nótunum sem mér fannst rífa áhorfendur um of upp úr alvarleikanum og kannski ekki á hátt sem átti við. Ég held að það hefði verið betra að fá að sitja eftir í þyngslunum og tilfinningunum, óyrtum líkamleika og skepnuvitund frekar en að kippa okkur út undir beran himinn. En á heildina litið er þetta skemmtileg sýning sem á marga góða spretti, vinnur vel með myndbönd, ljós og tónlist og skilur mest eftir sig sjón- og myndrænt.

Sjöfn Asare, leikhúsgagnrýnandi Víðsjár rýnir í Púðlusafnið sem er sýnt í Tjarnarbíói þessa dagana.

Sjöfn Asare, rithöfundur og bókmenntafræðingur, flutti pistil sinn í Lestinni á Rás 1. Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan.

03.11.2026 14:00


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001122
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.