Gylfa Ólafssyni, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, tókst ekki að tryggja bænum málverk af Pollinum eftir danska málarann Christian Blache á uppboði danska uppboðshússins Bruun Rasmussen á dögunum. Ástæðan var sú að verkið var selt fyrir margfalt matsverð.
Í dagbók bæjarstjóra, sem Gylfi heldur úti á vef Ísafjarðarbæjar, segir hann frá því að honum hafi borist ábending um verkið frá ,,manni útí bæ". Í framhaldinu ráðgerði Gylfi að kaupa listaverkið til að koma því heim til Ísafjarðar, að því gefnu að það yrði innan þess verðmats uppboðshússins sem var 12 til 15 þúsund danskar krónur eða á bilinu 220 til 275 þúsund íslenskar. Það var á endanum selt á rétt rúma milljón, án uppboðsgjalda.
,,Þegar leið á mánudaginn fór verðið að stíga hratt upp fyrir það sem ég taldi réttlætanlegt að verja af opinberum peningum og ég hætti að bjóða í verkið. Svona uppboð fer fram með leyninúmerum í stað nafna og því er ekki hægt að vita hver bauð í, en ljóst er að að minnsta kosti tveir kaupendur voru spenntir fyrir verkinu því það fór á endanum fyrir 55.000 danskar krónur. Að teknu tilliti til aukagjalda slagar það upp í eina og hálfa milljón íslenskra króna," skrifar Gylfi.
Christian Blache var danskur málari sem var fæddur 1838. Hann er þekktastur fyrir málverk sjávarmyndir sínar. Listasafn Íslands á nokkrar sjávarmyndir eftir Blache, meðal annars málverk frá Eyjafirði og Eskifirði.