RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

Krefjast þess að skip verði afhent og kölluðu sendiherra Noregs á teppið

Stjórnvöld í Rússlandi krefjast þess að fá strax til baka skip sem í gær var kyrrsett við kolanámubæinn Barentsburg á Svalbarða. Skipið var kyrrsett að kröfu úkraínska orkufyrirtækis Naftogas sem krefst bóta frá Rússum

Grunur er um að skipið, sem heitir Prófessor Molchanov, hafi verið notað við áróðursstarfsemi og skipulagningu fjölþáttaógna.

Krefjast bóta samkvæmt úrskurði dómstóls

Lars Fause, norski sýslumaðurinn á Svalbarða, sagði skipið hafa verið kyrrsett vegna úrskurðar héraðsdóms Norður-Troms og Senja. Með kyrrsetningunni eigi að tryggja að Rússar standi við skuldbindingar sínar gagnvart Naftogas. Fyrirtækið krefst þess að fá upphæð sem jafngildir 4,2 milljörðum bandaríkjadala í bætur eftir að Rússar gerðu eignir þess upptækar við innlimun Krímskaga 2014. Alþjóðadómstóllinn í Haag kvað upp þann úrskurð 2023 að Rússum bæri að greiða Naftogas þessa upphæð í bætur, vexti og lögfræðikostnað.

Utanríkisráðuneyti Rússlands kallaði sendiherra Noregs í Moskvu á sinn fund í dag vegna kyrrsetningarinnar. Þar var hörðum mótmælum komið á framfæri. Þá telur ráðuneytið að með kyrrsetningunni sé verið að hindra lögmæta veru Rússa á eyjunum sem tilheyra Svalbarða. ,,Við krefjumst þess að skipið verði tafarlaust afhent og að öryggi farþega og áhafnar verði tryggt," sagði í tilkynningu sendiráðs Rússlands í Noregi til fréttaveitunnar AFP.

Norðmenn segjast ekki eiga beina aðild að málinu

Yfirvöld í Noregi segjast ekki eiga beina aðild að málinu. Það sé milli einkaaðila og rússneska ríkisins og byggist á úrskurði Alþjóðadómstólsins í Haag. NRK, norska ríkisútvarpið, greinir frá því að sendiherra Noregs í Rússlandi hafi lagt á það áherslu á fundi sínum í utanríkisráðuneyti Rússlands í dag að Norðmenn væru staðráðnir í að finna lausn á málinu og gera sitt til að aðstoða rússneska ríkisborgara sem hafi verið á skipinu.

Rússland rekur kolanámu í bænum Barentsburg á Svalbarða þar sem um 350 manns búa.

03.09.2026 17:22


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000137
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.