RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Yngsti heimsmeistari í sögu Formúlu 1

Kimi Antonelli varð í kvöld yngsti heimsmeistarinn í sögu Formúlu 1-kappakstursins. Hann er einungis 20 ára og keyrir fyrir Mercedes.

Ljóst var fyrir keppnina að Antonelli þyrfti aðeins tvö stig til að verða heimsmeistari, sem sagt lenda í níunda sæti eða ofar. Hann fór létt með það því hann endaði þriðji og fagnaði sínum fyrsta heimsmeistaratitli þrátt fyrir að fjórar keppnir væru eftir af tímabilinu.

Lewis Hamilton hjá Ferrari byrjaði á ráspól. Antonelli byrjaði fimmti og af krafti og leiddi um stund. Hann fór í pitt á 44. hring og kom út í fjórða sæti, 12,4 sekúndum á eftir Hamilton sem leiddi.

Bilun varð hjá Valetteri Bottas á Cadillac á 46. hring og voru allir endurræstir þegar búið var að eiga við hana. Antonelli ræsti fjórði og vann sig fljótlega upp í þriðja og hélt því allt til leiksloka. Max Verstappen kom fyrstur í mark en þriðja sætið skilaði Antonelli 15 stigum sem dugði til og hann er heimsmeistari. Þetta er í fyrsta sinn í 73 ár sem Ítali verður heimsmeistari í Formúlu 1.

Yngstur til að...

Kimi Antonelli er sem fyrr segir aðeins 20 ára og á fjölmörg met í formúlu 1.

Yngstur til að leiða kappaksturYngstur til að setja hraðasta hringinnYngstur til að vera á ráspólYngstur til að vinna MónakókappaksturinnYngstur til að ná þrennu: Ráspól, sigri og hraðasta hringnum

Og nú er hann yngstur til að fagna heimsmeistaratitlinum.

01.11.2026 22:26


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001168
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.