RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Verktakar sendir heim og framkvæmdin stöðvuð

Framkvæmdir við sautján hæða risahótel við Skúlagötu í Reykjavík eru í uppnámi eftir að öllum verktökum var vísað af byggingarstað í gær og honum lokað.

Turnbyggingin við Skúlagötu hefur ekki farið fram hjá neinum sem keyrir Sæbraut. Mikið hefur verið fjallað um bygginguna sem hefur þótt umdeild og verið gagnrýnd fyrir að falla ekki nægilega vel inn í borgarskipulagið.

Það er fyrirtækið Rauðsvík sem stendur að framkvæmdunum og Art-verk, í eigu sömu aðila, var aðalverktaki. Þarna átti að reisa Radisson Red hótel á 17 hæðum með 214 herbergjum. Hönnun hússins hafði vakið mikla athygli en turninn var að hluta úr forsmíðuðum stáleiningum frá Póllandi. Sjálf hótelherbergin komu í nær fullbúnum innfluttum einingum.

Morgunblaðið sagði frá því í júlí að framkvæmdir væru langt komnar en samkvæmt myndum sem fréttastofa tók í dag er þó nokkuð í land. Og nú er alls óvíst hvert framhaldið verður.

Öllum verktökum við byggingu hótelturnsins í Skúlagötu var vísað af byggingarstað í gær. Framkvæmdir hafa verið stöðvaðar og alls óvíst er um framhaldið.

Skömmu eftir að verktakar mættu til vinnu í gær tilkynnti forsvarsmaður Rauðsvíkur þeim að þeir þyrftu að yfirgefa byggingarsvæðið samstundis þar sem framkvæmdir höfðu verið stöðvaðar. Svo var öllu skellt í lás. Einhverjir þeirra fengu þó að fara inn í til að sækja verkfæri og annan búnað.

Margvíslegir erfiðleikar við bygginguna

Bygging hótelsins hefur verið þyrnum stráð. Hún var samþykkt í skipulagsráði 2015 og átti upphaflega að opna hótelið 2021. Covid-faraldurinn setti strik í reikninginn og samkvæmt heimildum fréttastofu urðu töluverðar skemmdir á hinum fullbúnu einingum fyrr í ár vegna vatnstjóns.

Heimildir fréttastofu herma að verktakar hafi fengið þau svör í gær að viðskiptabanki Rauðsvíkur hafi lokað fyrir frekari fjárveitingar til verkefnisins. Samkvæmt gögnum sem fréttastofa hefur er Arion banki aðalkröfuhafi en talsmaður bankans vildi ekki tjá sig um málið. Ekki náðist í forsvarsmenn Rauðsvíkur.

Mikið undir

Viðmælendur fréttastofu sem þekkja til framkvæmdanna segja að þeir hafi haft áhyggjur af fjárhagsstöðu verkefnisins um nokkurt skeið. Þær hafi aukist enn frekar þegar skemmdirnar á einingunum komu í ljós. Lokunin í gær hafi því ekki komið algjörlega á óvart þótt hún hafi verið fyrirvaralaus. Undirverktakarnir bera töluvert tjón af stöðvuninni.

Hvert framhaldið verður er óljóst en viðmælendur segja mikla hagsmuni undir. Milljörðum hefur verið varið í verkefnið og töluverða fjármuni þarf til að halda því áfram.

03.11.2026 18:54


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001175
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.