RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,1°C
Stykkishólmur: 5,4°C
Ísafjördur: 6,7°C
Blönduós: 5,3°C
Akureyri: 6,6°C
Egilsstadir: 4,9°C
Höfn: 5,6°C
Selfoss: 3,8°C
Hveravellir: 0,4°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Tvö börn létust í flugslysinu í Flórída

Tvö börn, tveggja og fjögurra ára gömul, voru meðal þeirra níu sem létust þegar lítil flugvél hrapaði á Flórída í gær. Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum greinir frá því að veðurskilyrði hafi sennilega átt stóran þátt í slysinu.

Flugvélin, sem var af gerðinni Learjet 60, lagði af stað frá Austin í Texas klukkan 15.37 að íslenskum tíma og hélt til Bahamaeyja en á leiðinni hrapaði vélin til jarðar á Palm Beach í Flórída. Mikill eldhnöttur gaus upp þegar flugvélin skall á jörðinni.

Aðstoðarflugmaðurinn var tvítug stúlka, Natalia Gadelha Filgueiras, en hún hafði verið með flugpróf frá 17 ára aldri og hafði skráð yfir 1300 flugtíma.

Yfirvöld hafa ekki staðfest hverjir voru um borð en nokkrir fjölmiðlar, þar á meðal CNN, herma að fjölskyldumeðlimir þeirra sem létust hafi borið kennsl á þau. Farþegarnir voru tvenn hjón, barnfóstra og börnin tvö.

Ísing utan á vélinni

Áður en flugvélin hrapaði tilkynnti Filgueiras um ókyrrð. Hún sagði að hitastigið utan vélarinnar væri -47°C og að ísing væri að myndast utan á vélinni. Rétt eftir það sendi hún neyðarkall og útskýrði að vélin væri að hrapa um 10.000 fet á mínútu, síðan aftur að nú væru það 20.000 fet. Breska ríkisútvarpið BBC segir frá því að það síðasta sem heyrist voru orðin: ,,Við höfum ekki meiri tíma."

Brakið úr vélinni dreifðist víða og BBC segir að verið sé að skoða hvort vélin hafi byrjað að liðast í sundur áður en hún skall á jörðinni.

03.11.2026 02:32


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001180
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.