Bandaríkjaher gerði í dag árásir á írönsku eyjuna Qeshm í Hormússundi í dag. Íranskir fjölmiðlar segja fimm sprengingar hafa heyrst og að tvær orrustuþotur hafi sést.
Nokkrir bandarískir fjölmiðlar, eins og CNN, The New York Times og fleiri, hafa eftir bandarískum embættismönnum að árásirnar hafi verið gerðar í varnarskyni. Þá hafi yfirvöld ákveðið að tilkynna ekki um þær sérstaklega til að koma í veg fyrir ótta um að Bandaríkjaher væri aftur að hefja stórfelldar árásir á Íran.
Bandaríkin og Ísrael hófu stríð við Íran með árásum í lok febrúar. Stjórnvöld í Ísrael segjast ekki hafa tekið þátt í síðustu árásum, samkvæmt AFP-fréttaveitunni.
Stutt er síðan Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að samningur við Íran væri mögulega í farvatninu. Þingkosningar eru í Bandaríkjunum í dag og margir landsmenn eru ósáttir við verðhækkanir sem raktar eru til stríðsins við Íran og lokunar Hormússunds.
Óbeinar viðræður í gangi
Ríkisfjölmiðar í Íran hafa eftir utanríkisráðherranum Abbas Araghchi að óbeinar viðræður við Bandaríkin séu í gangi. Í ljósi viðkvæmrar og alvarlegrar stöðu sé lögð áhersla á að ræða saman.
Mohammad Bagher Ghalibaf, aðalsamningamaður Írans, sagði í dag að þó að Íranar væru tilbúnir í stríð hafi viðbrögð þeirra við umleitunum Bandaríkjanna verið skynsamleg. ,,Nú er boltinn hjá Bandaríkjunum, að koma í veg fyrir stríð," sagði Ghalibaf.
Olíuverð féll um rúm sjö prósent í gær þegar vonir glæddust um að ríkin semdu. Þá höfðu forseti og varaforseti Bandaríkjanna báðir lýst yfir bjartsýni um að samningar tækjust brátt.
Vance sagður hafa sent Írönum bréf
Fjölmiðillinn Axios greindi frá því í síðustu viku að JD Vance varaforseti Bandaríkjanna hefði sent bréf til Mohsen Rezaei, þjóðaröryggisráðgjafa Írans, um mögulegar viðræður. Mohammad Reza, fyrsti varaforseti Írans, sagði bréfið til merkis um að stjórnvöld í Bandaríkjunum væru að viðurkenna sigur Írans.
AFP-fréttaveitan hefur eftir háttsettum írönskum embættismanni að Íranar væru tilbúnir að opna Hormússund innan tveggja daga gangi Bandaríkin að skilmálum þeirra. Hormússund er mikilvæg siglingaleið með olíu og gas.
Íranar lögðu fram áætlun um opnun Hormússunds í september. Í henni voru kröfur um að stríðinu yrði að fullu hætt, Íranar fengju til baka frystar eignir sínar, refsiaðgerðum sem beinast að olíuviðskiptum yrði hætt, sem og hafnbanni Bandaríkjanna í írönskum höfnum.