Kjördagur er runninn upp í Bandaríkjunum og hækkandi framfærslukostnaður er það mál sem hæst ber, að sögn tveggja Íslendinga sem búa í landinu.
,,Í kringum mig og ég tel á landsvísu eru það efnahagsmálin. Það er verðlag á húsnæði og matvöru, bensínverð," segir Ýr Örlygsdóttir, sem er á þriðja ári í doktorsnámi í Chicago. Allt tengist þetta dvínandi vinsældum Bandaríkjaforseta og stríðinu við Íran. ,,Trump hefur til dæmis nefnt að hækkandi bensínverð sé lítið gjald til að koma í veg fyrir að Íran eignist kjarnorkuvopn og demókratar hafa verið að setja spurningamerki við þetta," segir hún.
Sara Þöll Finnbogadóttir, sem er í skiptinámi í doktorsnámi í Durham í Norður-Karólínu, tekur í sama streng. ,,Ég held að það sé matarkarfan, hvað kostar mikið að lifa daginn. Fólk er að fara út í búð og matarkarfan er tvöfalt, þrefalt dýrari en hún var fyrir mánuði síðan eða fyrir tveimur árum."
Fólk uggandi yfir eftirmálum kosninga
Framtíð lýðræðisins er fólki einnig hugleikin, að sögn Söru Þallar, það er hvað gerist eftir kosningarnar. ,,Mun ríkisstjórnin beita sér fyrir einhverju ef úrslitin eru ekki þeim í hag eða eitthvað þess háttar?"
Ýr segir að það sé ákveðinn ótti í loftinu. ,,Það er að segja að þrátt fyrir að demókratar muni vinna stórt þá er kvíði yfir því að það muni leiða til ólgu í samfélaginu og jafnvel ofbeldis og þar eru atburðirnir 6. janúar 2021 ofarlega í huga fólks."
Spenna fyrir kosningarnar er löngu byrjuð að myndast, segir Sara Þöll, um stemninguna í Durham. Hún flutti þangað í ágúst og strax þá mátti sjá mikið af auglýsingaskiltum. Sterk hefð sé fyrir því að fólk setji upp skilti í görðum sínum um ákveðin málefni. Eins sé mikið af auglýsingum á samfélagsmiðlum. ,,Þar er allt morandi af auglýsingum og eiginlega of mikið. Fólk var kannski þreytt á Íslandi út af þjóðaratkvæðagreiðslunni en hérna er þetta svona tíu þúsund sinnum verra."
Gervigreind áberandi í kosningabaráttu
Viðmælendur fréttastofu nefna báðir að gervigreind hafi töluvert verið notuð við gerð auglýsinga fyrir kosningarnar. Sara Þöll segir að gerð hafi verið alls konar myndbönd og eins falsmyndbönd. Aðferðirnar séu ólíkar því sem þekkist í hefðbundnum kosningum á Íslandi og í öðrum Evrópuríkjum.
,,Auglýsingaherferðir hafa verið gríðarlegar og ekki alltaf fallegar og einkennst mikið af notkun gervigreindar," segir Ýr. ,,Svo það verður áhugavert að sjá hvað helst virkar því þessar kosningar á miðju kjörtímabili eru auðvitað dálítill tilraunavettvangur til að sjá hvað virkar og hvað virkar ekki. Ef gervigreindarauglýsingar virka núna þá erum við örugglega að fara að sjá mikið af þeim í forsetakosningum."