Árni Matthíasson skrifar:
Krummi Björgvinsson er ćttađur úr rokki af hörđustu og grimmustu gerđ, en í sólóferli sínum hefur hann ţróast í ađra átt, ţó enn eimi eftir af rokkinu í textum og raddbeitingu og votti fyrir henni í tónlistinni. Hann hefur spreytt sig á ýmsu síđustu árir, enda leikur flest í höndum hans, hvort sem ţađ er myrk hljómborđskeyrsla í Legend, sem hann vann međ Halldóri Ágústi Björnssyni, eđa blússkotiđ kántrí í Esju, ţar sem hann vann međ Daníel Ágúst Haraldssyni. Á nýútkominni sólóskífu, Scavenger of Hope, er bandarískt útlagakántrí ráđandi, nútímalegt skuggaskotiđ ameríkana međ sterkum persónulegum textum.
Lög og textar á Scavenger of Hope eru eftir Krumma, hann leikur á gítara og slagverk og annast útsetningar og upptökustjórn međ ađstođ Friđjóns Jónssonar Hljóđritameistara. Ýmsir leggja Krumma og liđ á skífunni, til ađ mynda á Bjarni Sigurđsson, Mínusfélagi Krumma, marga góđa spretti, Ţorleifur Gaukur Davíđsson spilar framúrskarandi vel á fetilgítar og munnhörpu, ekki síst í laginu Bird of Passage, Birgir Ísleifur Gunnarssson leggur til smekklegt hljómborđsspil ţegar viđ á og Erik Qvikt er traustur á trommunum. Óttar Sćmundsson spilar líka einkar vel á bassann og víđa framúrskarandi vel. Alex Roth leggur til lipurt mandólín.
Krummi hefur veriđ ađ tína út lög af plötunni út áriđ, ţrjár smáskífur eru komnar út af henni og nú síđast Bak viđ fjöllin, eina lagiđ á plötunni sem er međ íslenskum texta, en Krummi tók ţađ upp ađ nýju međ íslenskum texta og breyttri útsetningu ţegar Björgvin Halldórsson fađir hans féll skyndilega frá í vor. Textinn er ţrunginn eftirsjá og sorg en líka af von og ţakklćti. Mjörk sterkt og áhrifamikiđ lag í einfaldleika sínum.
Ţađ er myrkur víđa í lögum plötunnar, skuggar á sveimi, ógnir og ótti, tár og tregi. Í textum og útsetningum er Krummi ađ vinna međ ţekkt minni en hann beitir líka myndlíkingum til ađ segja sögur úr eigin lífi og glímu viđ sjálfan sig, sem hefur veriđ hörđ ef marka má suma textana. Hann bregđur sér líka í ýmis gervi, stígur inn í ýmis hlutverk í ýmsum sögum.
Krummi beitir röddinni víđa framúrskarandi vel og skiptir um lit og ţunga í henni eftir ţví sem viđ á. Heyr til ađ mynda lágstemmdan söng hans í upphafslagi plötunnar, Sweet Little Crow, og meiri keyrslu í Bird of Passage. Ađ ţví sögđu ţá er söngurinn alltaf hófstemmdur og fellur vel ađ stemningunni á plötunni.
Björgvin Halldórsson var brautryđjandi í ţví ađ kynna Íslendingum kántrítónlist fyrir hálfri öld eđa svo međ Brimkló, sem naut gríđarlegra vinsćlda međ sitt kántrípopp um miđbik áttunda áratugar síđustu aldar. Sú tónlist sem Krummi er ađ spila er kántríćttuđ, en hún er nútímaleg, alvöruţrungin og tilfinningarík og ristir ţví dýpra.