RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Hugurinn kominn á réttan stað og nú er allt að smella

Andrea Kolbeinsdóttir hefur gert það gott á hlaupabrautinni undanfarið. Um síðustu helgi vann hún eitt af stærri utanvegahlaupum heims í Suður-Kóreu. Andrea er nýlega orðin atvinnuhlaupari og sigurinn vitanlega stórt skref á hennar ferli. Þetta var lokakeppni ársins í Golden Trail World Series sem er með stærri hlaupaseríum í heimi.

Andrea segir sigurinn hafa verið óvæntan. ,,Það er svona fyndið að maður hafði trú á því að maður gæti unnið en var ekkert endilega að búast við því að vinna það í alvörunni þannig að já, ég held ég hafi komið öllum á óvart um síðustu helgi."

Rifbeinið brákað en það kom ekki að sök

Andrea hafði dottið viku fyrir hlaupið og brákað rifbein. Hún var meðvituð um eymslin og var fremur stressuð um að detta í hlaupinu. Það gerðist svo í miðju hlaupi.

,,Ég negldi í tré akkúrat á hliðina, á síðuna sem ég er með brákað rifbein þannig að ég fann alveg svona að verkurinn varð aðeins meiri við það en þá var ég að leiða hlaupið og maður var ekkert að hugsa um það í hlaupinu en svo bara strax og hlaupið var búið þá fann ég meira fyrir verknum en það var ekkert að trufla í miðju hlaupi."

Hlaupakonan Andrea Kolbeinsdóttir vann síðustu helgi eitt af stærri utanvegarhlaupum heims í Suður-Kóreu. Við fengum að kíkja á æfingu hjá henni og spurðum hana út í hlaupið, andlega þjálfun og YouTube-rás hennar.

Í lok september vann Andrea einnig stórt mót í Frakklandi þar sem hlaupaleiðin var 50 kílómetrar. ,,Ég er ótrúlega ánægð með það hlaup og hvernig það gekk. Ég er bara á ótrúlega góðum stað bæði með hausinn og formið og bara allt einhvern veginn búið að smella síðustu mánuði. Þannig að það var mjög gaman að vinna það líka." Þar með hafi hún tryggt sér þátttökurétt í úrslitahlaupi UTMB-seríunnar að ári. UTMB er, eins og Golden Trail, með sterkustu hlaupaseríum heims.

,,Hausinn er svo ótrúlega stór partur af þessu"

Andrea átti erfitt á Evrópumótinu í sumar og hún opnaði sig í kjölfarið á samfélagsmiðlum um baráttuna við neikvætt sjálfstal. Hún segist hafa unnið mikið í hugarfarinu undanfarna mánuði og það sé að skila sér á hlaupabrautinni.

,,Það er eiginlega það sem ég svona finn mun á mér núna, formið er ekkert endilega eitthvað miklu betra. Langstærsta breytingin er bara hausinn, að vinna mjög mikið í hugarfarinu og vera ekki með svona bara keppniskvíða sem var svolítið að hrjá mig á síðasta ári. Já, hausinn er svo ótrúlega stór partur af þessu."

Andrea segist hafa rætt opinskátt við gott fólk í kringum sig og unnið þannig úr alls kyns hugsunum. ,,Það eru allir sem ströggla en það bara fer eftir því hvernig þú ætlar að tækla það." Nú hefur hún þau tól sem þarf til að ná sér upp úr erfiðum hugsunum þegar hausinn villist af leið.

Gamall draumur orðinn að veruleika

Í sumar lét Andrea svo gamlan draum rætast þegar hún byrjaði með sína eigin YouTube-rás.

,,Ég horfi ekki mikið á sjónvarp en mér finnst ógeðslega gaman að horfa á YouTube hjá öðrum. Það er sjónvarpið mitt og ég hef oft hugsað hvað það væri gaman að gera þetta sjálf."

Þar sýnir hún frá ýmsu í sínu daglega lífi sem snýst eðlilega að miklu leyti um hlaupin.

,,Fólk heldur kannski að hlaup taki bara einn eða tvo tíma af deginum og spyr hvað ég sé eiginlega að gera. En mér leiðist aldrei. Í fyrsta lagi er bara magnað hvað einhvern veginn allur dagurinn er bara einhvern veginn fókusar í kringum hlaupin. Bæði náttúrulega að taka æfinguna og svo endurheimtin eftir æfinguna, elda mat og fara í sund og heita pottinn og sjúkraþjálfun."

Andrea segist hafa fengið góð viðbrögð við myndböndunum en henni þyki einnig gaman að eiga minningarnar sem hún festir á filmu eftir einhver ár.

02.11.2026 06:00


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001168
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.