RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Þór/KA heyrir sögunni til í fótboltanum

Akureyrarfélögin Þór og KA hafa nú slitið samstarfi sínu um sameiginlegan meistaraflokk kvenna í fótbolta eftir áratugalangt samstarf. Keppt var undir merkjum Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) á árunum 1993-1998 en Akureyrarliðið lék svo undir nafninu Þór/KA árin 1999 og 2000. Ári seinna kom svo Knattspyrnufélag Siglufjarðar (KS) inn í samstarfið og Þór/KA/KS spilaði í Íslandsmóti kvenna á árunum 2001-2005.

Frá 2006 hefur svo Þór/KA átt sæti á Íslandsmótinu og varð Íslandsmeistari tvisvar undir merkjum Þór/KA. Það var árin 2012 og 2017. Íslandsmótið á næsta ári verður því það fyrsta síðan árið 1992 sem Þór og KA tefla fram sitt hvoru kvennaliðinu.

Þór verður því í Bestu deildinni á næstu leiktíð en KA verður með lið í 2. deild kvenna. Sjá tilkynningu KA hér.

Þar með er nánast öllu samstarfi Akureyrarfélaganna lokið. Félögin voru með sameiginlegt lið á Íslandsmóti karla í handbolta undir nafninu Akureyri handboltafélag á árunum 2006-2017 en luku því þá og síðan hafa KA og Þór átt sitt liðið hvort. Aðeins lið KA/Þórs í Olísdeild kvenna í handbolta er þar með eina liðið sem félögin tvö sameinast nú um.

02.11.2026 14:59


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001168
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.