Þrjú ungmenni dóu í bílslysi í nótt.
Slysið var á Krýsuvíkurvegi í Hafnarfirði.
Það gerðist stuttu eftir miðnætti.
Lögreglan sagði frá slysinu.
Í bílnum var einn strákur og tvær stelpur.
Bíllinn fór út af veginum.
Bíllinn var á leiðinni suður Krýsuvíkurveg.
Slysið varð nálægt Bláfjallavegi.
Lögreglan rannsakar nú slysið.
Sérstök nefnd rannsakar líka slysið.
Þau vilja vita af hverju slysið varð.