,,Þetta er krökkt af tilvitnunum í nútímann og tilraunum til að fanga hversdagsleika ungs fólks sem heppnast að miklu leyti vel. Sérstaklega þessi tenging við samfélagsmiðla og símann. Símar birtast mjög vel í þessari bók, mikið í þessari bók," segir Ingibjörg Iða Auðunardóttir um Aðskotahluti, nýjustu skáldsögu Einars Lövdahl.
Sagan segir frá Sigurþóri og Þorgerði, ungum Íslendingum sem búa í Svíþjóð sem eiga það sameiginlegt að vera dálítið vegvillt.
,,Þetta er áhugavert að mörgu leyti. Ég held hins vegar að bókin hefði verið aðeins betri ef hún hefði verið þéttari, aðeins tálguð og skarpari og lokahnykkurinn, það er svona tónleikakafli, það hefði þurft aðeins að endurhugsa það að mínu viti," segir Ingibjörg. Þá líði persónurnar aðeins fyrir það að vera of góðar. ,,Það vantar stundum að þær séu aðeins vondar, þær séu aðeins breyskari."
Gagnrýnendur Kiljunnar voru sammála um að Einar væri mjög læs á nútímann.
,,Mér fannst vel gert, báðar þessar aðalpersónur eru með fortíðina á herðunum. Svo er móðirin, hún er eiginlega þrúguð af hversdagsleikanum með ung börn og það gerir höfundurinn afskaplega vel að skapa það andrúmsloft. Mér finnst hann hefði mátt gera meira af því," segir Kolbrún Bergþórsdóttir.
Bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar segir höfund Aðskotahluta mjög læsan á nútímann. Persónurnar séu þó helst til of góðar. ,,Það vantar stundum að þær séu aðeins vondar, þær séu aðeins breyskari."
Gagnrýnendur Kiljunnra fjölluðu um bókina Aðskotahluti eftir Einar Lövdahl í síðasta þætti Kiljunnar. Hægt er að horfa á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan.