Kom óboðinn inn í íbúð og reyndi að komast á upptekið baðherbergi Lögreglu barst tilkynning um mann með bakpoka sem kom óboðinn inn í íbúð og reyndi að komast inn á baðherbergi sem eigandi íbúðarinnar var á. Hurðin var læst og hljóp maðurinn þá á brott. Hann fannst ekki þrátt fyrir leit. Þetta kemur fram í tilkynningu úr dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þá var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki í Reykjavík og eld í gámi á endurvinnslustöð. Lítið sem ekkert tjón varð af brunanum en mögulega kviknaði út frá rafhlöðu. Einnig var tilkynnt um umferðarslys þar sem bifreið var ekið inn í hlið annarrar. Loftpúðar sprungu út í annarri bifreiðinni og ökumenn hugðust sjálfir leita læknisaðstoðar. RÚV / Ragnar Visage
03.09.2026 21:56
<< Til baka
|
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C Stykkishólmur: 9,1°C Ísafjörður: 7,9°C Blönduós: 9,7°C Akureyri: 8,5°C Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað Höfn: 9,1°C Selfoss: 10,2°C Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni
DAGSKRÁ
Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá
GAMALT.NET
Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt
|
|