Hátíðin Reykjavík Bear er dagana 3.-6. september og sameinar bangsa, vini þeirra og gesti víðs vegar að úr heiminum í fjögurra daga hátíð. Bangsasamfélagið á rætur í menningu hinsegin karla og varð til sem rými fyrir fólk sem fann sig ekki í ríkjandi útlitskröfum. Orðið bangsi hefur gjarnan verið tengt við stórvaxna, skeggjaða eða loðna karla en samfélagið er mun fjölbreyttara en sú staðalmynd gefur til kynna. Líkamsjákvæðni, samstaða og frelsið til að vera maður sjálfur eru í fyrirrúmi á meðal bangsasamfélagsins. Á meðal hápunkta hátíðarinnar er val á Mr. Reykjavik Bear í Austurbæjarbíói á laugardaginn.
Sigurður Júlíus Guðmundsson, formaður Bangsafélagsins, og Jóhann Örn B. Benediktsson, Mr. Reykjavík Bear, kíktu í Mannlega þáttinn á Rás 1 og sögðu þeim Guðrúnu Gunnarsdóttur og Gunnari Hanssyni frá.
Böngsunum úthýst svo þeir héldu eigin partí
Sigurður segir að sögu bangsasamfélagsins megi rekja til eyðnifaraldursins þegar gay-börum í San Fransisco var lokað vegna útbreiðslu hans. Þá tóku hinsegin karlar sig til og héldu sín eigin lokuðu partí en hleyptu aðeins mönnum inn sem voru grannir og heilbrigðir í útliti samkvæmt þeirra stöðlum.
Þeir sem litu öðruvísi út eða voru veiklulegir fengu ekki að vera. Þessir stóru loðnu gaurar sem ekki var hleypt inn fóru að halda sín eigin partí. Þannig varð þetta til, þetta bangsasamfélag.
Sigurður segir að blessunarlega hafi viðhorfið breyst en bangsar standi áfram saman.
Þetta hefur þroskast aðeins og er ekki eins mikið útlitskerfi sem þarf að fara eftir. Þetta snýst meira um að vera opinn og bera virðingu fyrir mismunandi líkömum, mismunandi fólki.
Í samfélagi bangsa ríkir gleði og samstaða. Jóhann segir að það sé ótrúlega skemmtilegt að tilheyra því.
Stórir, loðnir og þykkir menn
Þarna inni þá er fólkið rosalega opið og eins og nafnið ber með sér eru þetta oft menn og kvár sem eru útlítandi eins og birnir, bangsar.
Bangsarnir eru flestir stórir, loðnir og þykkir en innan samfélagsins ríkir þó mikil fjölbreytni.
Það er mikið af mismunandi fólki í því samfélagi og í þeirri gleði sem þar er við völd. Það er rosalega gaman að vera í svona opnu samfélagi þar sem ekki ríkja miklar kröfur um hvernig þarf að líta út.
Landkynning fyrir Ísland
Saga bangsahátíðarinnar á Íslandi nær aftur um áratugi. Þetta er í tuttugasta skipti sem bangsar koma saman til að fagna. Áður var hátíð sem kallaðist Bears on ice og var haldin í fimmtán ár en svo tók Reykjavik Bear við af henni.
Bangsarnir sem sækja hátíðina koma víða að. Þeir Jóhann og Sigurður segja að erlendir gestir séu árlega um 100-150 talsins.
Þetta er mikil landkynning fyrir Ísland. Við förum með hluta af björnunum Gullna hringinn, förum í lón og matartúra. Svo förum við á Lava show og alls konar til að sýna þeim Ísland og kynna landið.
Kom fram í sundskýlu og sýndi hæfileika á sviði
Í fyrra var í fyrsta sinn haldin keppni um aðalbangsann, Reykjavik Bear. Hlutverk hans er að vera erindreki á erlendum vettvangi. Jóhann var valinn og er ríkjandi Reykjavik bear fram á laugardag.
Ég fékk þetta hlutverk og vann keppnina í fyrra. Ég hef farið á níu hátíðir í átta löndum á einu ári. Ég ákvað að grípa gæsina, fara og skemmta mér, fá landkynningu í öðrum löndum og kynnast þessu samfélagi.
Til að hreppa hnossið þarf að gera ýmislegt.
Ég hef gert grín að þessu að þetta sé eins og Ungfrú Ísland fyrir stóra homma. Ég kom fram í sundskýlu, var í hæfileikakeppni. Við þurfum að svara spurningum, við erum með dómara, við erum með netkosningu og kosningu í sal og við fáum í raun allt samfélagið til að taka þátt. Svo þegar keppninni er lokið er valinn vinningshafi.
Jóhann segir að árið hafi verið skemmtilegt og gefandi en hann er líka tilbúinn að rétta kyndilinn áfram.
Þetta er búið að vera yndislegt ár og það er ótrúlega gaman að einhver annar fái að taka við og þeir úti fái að kynnast fleira fólki. Þetta þýðir ekki að ég sé hættur að fara, ég fer bara með. Ég hef kynnst yndislegu fólki alls staðar að.
Opið öllum í ár til að spæla ekki vinkonur bangsanna
Keppnin sjálf fer fram í Austurbæ og svo er partí á eftir þar sem bangsar koma saman og fagna. Í fyrra máttu aðeins karlar og kvár mæta á keppnina og hátíðina en nú er hún opin öllum. Það er ekki síst gert eftir kvartanir frá vinkonum Jóhanns sem gátu ekki mætt en vildu vera á svæðinu að hvetja sinn mann. ,,Þær voru eiginlega hundfúlar að fá ekki að koma að fylgjast með. Þær sendu því kærastana sína með símana til að vera með beint streymi heim í stofu," segir Sigurður glettinn. Nú þurfa vinkonurnar ekki að vera spældar.
Við hugsuðum því að í ár væri ekkert vit í að banna fólki að koma sem vill styðja við sitt fólk.
Jóhann tekur undir.
Það var svolítið mikið um að vinkonur mínar sátu heima með sárt ennið og gátu ekki fylgst með mér keppa. Menn og kærastar voru fengnir til að koma og þær fengu live update um hvernig væri að ganga.
Hér er hægt að nálgast allar upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar.
Reykjavik Bear-hátíðin er haldin í fimmta sinn um helgina. Þetta er í annað sinn sem einn bangsi er útvalinn og krýndur Reykjavik bear. Því hlutverki sinnti Jóhann Örn Benediktsson síðasta árið en hann er tilbúinn að krýna næsta bangsa.