Golden State Valkyries og Atlanta Dream mættust í oddaleik í úrslitaeinvíginu um NBA-meistaratitil kvenna í körfubolta í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem úrslitaeinvígi kvenna fer í oddaleik.
Atlanta hafði komist 2-1 yfir í einvíginu eftir fyrstu þrjá leikina en því svaraði Golden State með tveimur sigurleikjum í röð. Atlanta vann sjötta leikinn og því þurfti oddaleik.
Jafnræði var meðal liðanna í fyrsta leiklhluta en Veronica Burton sá til þess að Golden State leiddi að honum loknum, 12-14. Atlanta náði þó forystunni í öðrum leikhluta og leiddi í hálfleik, 30-24. Atlanta leiddi mest með níu stigum í þriðja leikhluta, 37-28. Þá svaraði Golden State með góðri syrpu og Gabby Williams kom liðinu yfir fyrir lok þriðja leikhluta, 44-45.
Williams með dýrmæta þriggja stiga körfu
Í fjórða leikhluta tókst hvorugu liðinu að slíta sig frá hinu og liðin skiptust á að skora stig. Allt var jafnt í stöðunni 57-57 þegar þrjár mínútur lifðu leiks. Þá setti Williams niður þriggja stiga skot og áður en langt um leið leiddi Golden State, 57-64. Það forskot reyndist afar dýrmætt því illa gekk hjá Atlanta að minnka muninn. Loks landaði Golden State fimm stiga sigri, 63-68.
Splunkunýtt lið
Það sem gerir sigur Golden State enn áhugaverðari er að liðið er aðeins tveggja ára gamalt og er á sínu öðru tímabili í NBA-deildinni. Liðið komst í úrslitakeppnina strax á sínu fyrsta tímabili og varð þá fyrsta liðið til að gera það. Golden State hefur nú landað fyrsta meistaratitlinum.
Milwaukee Bucks á metið í NBA-deild karla. Liðið vann meistaratitilinn eftir þrjú tímabil í deildinni árið 1971. Golden State Valkyries tókst að vinna deildina eftir aðeins tvö.