RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
,,Við viljum að farið verði vel með hverja krónu"

Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar segir hagræðingu í rekstrinum vera til þess að geta aukið fjárfestingu í hverfum borgarinnar.

,,Og bætt í skemmtilegu verkefnin til framtíðarinnar. Það er enginn að hagræða að gamni sínu og það er ekki skemmtilegt að segja upp hæfu fólki sem fer nú að gera eitthvað og velta við hverri steinvölu í kerfinu," segir Björg.

,,Við erum að gera þetta til þess að geta farið í fjárfestingu inni úti í hverfunum. Við höfum þar sérstaklega talað um grunn- og leikskóla, íþróttamannvirkin, gangstéttir, sundlaugarnar."

Björg segir eignasafn borgarinnar mjög umfangsmikið sem sinna þurfi. ,,Reykjavíkurborg hefur ekki verið frábær eigandi að öllum þessum eignum og þessu viljum við snúa við."

,,Við vitum það að Reykjavíkurborg á uppundir 400 fasteignir víða um borgina. Við ætlum að fara yfir þær með skipulegum hætti og kanna hvort þar er eitthvað úr eignasafninu sem mætti losa og koma í hendur annarra, atvinnulífs, einkaaðila eða einhverra sem geta þá nýtt þær byggingar með öðrum hætti."

Forseti borgarstjórnar segir fyrirhugaðar hagræðingaraðgerðir til þess gerðar að geta farið í framkvæmdir tengdar skólum, íþróttamannvirkjum og gangstéttum í hverfum borgarinnar. Vel þurfi að fara með hverja krónu.

Sveitarfélög eigi ekki að blanda sér í samkeppnisrekstur

Björg segir Viðreisn hafa lagt áherslu á að selja hjúkrunarheimilið Droplaugarstaði, sem Reykjavíkurborg rekur. Það sé verkefni á vegum ríkisins. Hún nefnir að vel hafi tekist til við sölu Perlunnar á síðasta kjörtímabili, sem sé dæmi um eign sem borgin þurfi ekki að eiga.

Björg áréttar fyrirhugaða sölu borgarinnar á Carbfix og Ljósleiðaranum. ,,Þetta eru dæmi um fyrirtæki sem eru í samkeppnisrekstri. Það er alveg skýrt hjá okkur í Viðreisn að sveitarfélög eiga ekki að blanda sér í samkeppnisrekstur með beinum hætti."

Einnig hafi árum saman verið talað um sölu á malbikunarstöðinni Höfða sem gæti verið betur sett í höndum einkaaðila. Eins hafi verið kallað eftir vinnustöðum og einkaaðilum sem hafi áhuga á að reka leikskóla í borginni. ,,Þetta er liður í því."

Björg nefnir sérstaklega leikskóla sem einkaaðili er að byggja í Elliðaárdal sem borgin hyggst svo leigja.

,,Þetta kann að koma betur út í okkar fjármálum. Fæðingartíðni fer einnig lækkandi og því er kannski ekki sniðugt til framtíðar að borgin eigi alla leikskóla. Við erum að kanna að vera með ólík form innan okkar starfsemi."

Brýnt að snúa við hugfari til meðferðar fjármuna

Fjölnotahús KR, knatthús Fram og vetrargarður í Breiðholti eru meðal þeirra verkefna sem farið verður í á næsta ári. ,,Þetta eru þrjú af mjög mörgum verkefnum sem við erum að fara í. Það er ólíkt eftir hverfum hvar skuldin er mest. Þetta er eitthvað sem við munum halda dampi í á næstu árum," segir Björg Magnúsdóttir.

Mikilvægast sé að snúa við hugarfarinu varðandi hvernig farið sé með peninga og hugsað um fjármál borgarinnar.

,,Við viljum að farið verði vel með hverja krónu. Við viljum gjarna fara í samtal við ríkið um hvernig auka megi og styrkja tekjustofna sveitarfélaga. Okkur finnst ábyrg nálgun að skoða hvað við getum gert betur."

Björg áréttar að verðbólga og ástandið í þjóðfélaginu hafi mikil áhrif. Verið sé að einfalda kerfið nægilega svo hafa megi borð fyrir báru gagnvart áföllum sem geti dunið yfir.

,,Við leggjum áherslu á að gera plön sem standast. Við munum endurskoða forsendur fjárhagsáætlunar milli funda. Hún verður loks samþykkt í byrjun desember." Vandlega verði lagst yfir verðbólguspá enda skipti mestu máli að leggja fram áætlun sem heldur.

03.11.2026 15:10


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001175
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.