RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Katla Björk svekkt eftir HM en dregur lærdóm úr keppninni

Katla Björk Ketilsdóttir reið á vaðið fyrir hönd Íslendinganna á HM í ólympískum lyftingum sem fram fer í Ningbo í Kína um þessar mundir. Katla Björk keppti í 61 kílóa flokki í D-hópi.

Opnunarlyfta Kötlu Bjarkar var 86 kíló í snörun og gekk að óskum. Í þeirri næstu gerði hún atlögu að Íslandsmeti þegar 90 kíló voru á stönginni. Það gekk hins vegar ekki og hún reyndi við sömu þyngd í þriðju lyftu en sömu sögu var að segja þar.

Í jafnhendingu lyfti hún mest 103 kílóum í annarri lyftu en sú þriðja fór ekki upp. Samanlagður árangur Kötlu Bjarkar var því 189 kíló sem skilaði henni fimmta sætinu af tíu keppendum. Í heildina endaði Katla Björk í 31. sæti í sínum þyngdarflokki.

Dregur mikilvægan lærdóm úr keppninni

,,Ég er smá svekkt, þetta er ekki mín besta frammistaða en þetta kemur fyrir. Það sem ég tek út úr þessu er að halda haus þegar þetta fer ekki eftir plani og halda áfram. Ekki láta það trufla sig."

Bergur Sverrisson er næstur í íslenska hópnum. Hann keppir klukkan 11:00 að staðartíma á morgun sem er klukkan 03:00 í nótt á íslenskum tíma.

01.11.2026 14:12


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001168
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.