RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,3°C
Stykkishólmur: 4,9°C
Ísafjördur: 5,8°C
Blönduós: 5,6°C
Akureyri: 7,4°C
Egilsstadir: 7,8°C
Höfn: 7,3°C
Selfoss: 1,0°C
Hveravellir: 0,4°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Hafnar því að hafa sagt ósatt um starfslok forstjóra Landsvirkjunar

Fjármálaráðherra telur að lög hafi ekki verið brotin í samskiptum stjórnar Landsvirkjunar og forstjóra í aðdraganda afsagnar hans. Traust fyrirtækisins skipti gríðarlegu máli og alltaf sé óheppilegt þegar eitthvað kastar rýrð á það.

Hafi ekki sagt ósatt í ræðustól Alþingis

Þingmenn stjórnarandstöðunnar fóru hörðum orðum um Daða Má Kristófersson, fjármálaráðherra, við upphaf þingfundar í dag. Þeir sögðu orðið ljóst að ráðherra hefði sagt þinginu ósatt eða talað með mjög villandi hætti þegar hann tjáði sig um starfslok Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, í þingsal í síðasta mánuði.

RÚV greindi frá því í gær að Hörður hefði gert athugasemdir við starfshætti stjórnar fyrirtækisins og fjármálaráðuneytisins frá því í lok síðasta árs. Hann taldi afskipti stjórnarinnar óeðlileg og taldi að þau stefndu rekstri Landsvirkjunar í hættu.

Daði Már þvertekur fyrir að hann hafi logið á Alþingi.

,,Nei, það var ég ekki að gera. Og það sem ég tók fram er að þessi deila snerist ekki um stefnu Landsvirkjunar eða áherslur í stjórnun fyrirtækisins heldur væri um stjórnunarhætti og væri almenns eðlis. Og ég tel að ekkert annað hafi komið fram."

Engin lög hafi verið brotin í samskiptum stjórnar Landsvirkjunar og forstjóra.

,,Ég held að það sé alltaf óheppilegt þegar koma upp samskiptavandamál milli forstjóra og stjórnar. En það hafa ekki lög verið brotin þarna," segir Daði Már.

,,Það er hins vegar þannig að Landsvirkjun er ákaflega mikilvægt fyrirtæki og traust Landsvirkjunar skiptir gríðarlega miklu máli og það er alltaf óheppilegt þegar eitthvað kastar rýrð á það.

Fjármálaráðherra hafnar því að hafa logið í ræðustól Alþingis þegar hann ræddi um ástæður afsagnar forstjóra Landsvirkjunar. Hann telur ekki að lög hafi verið brotin í samskiptum stjórnar og forstjóra.

Stjórnarhættir ekki óeðlilegir

Daði Már segist ekki hafa trú á því að ESA fari ofan í saumana á vinnubrögðum stjórnar Landsvirkjunar í ljósi þeirra gagna sem fram eru komin.

,,Þetta eru auðvitað áhyggjur sem er full ástæða til að hafa. En ég vil benda á í þessu samhengi að breytingarnar á skipan stjórnar eru til þess að fara eftir og fylgja eftir tilmælum til dæmis OECD um eðlilega stjórnarhætti í fyrirtækjum, það er að segja að auka fjarlægðina á milli eigandans og fyrirtækisins."

Stjórnarhættir stjórnar Landsvirkjunar séu hvorki óeðlilegir né úr takti við það sem gengur og gerist í fyrirtækjum á markaði.

Telur þú eðlilegt að forstjóri sé upplýstur um fund stjórnar þremur vikum og jafnvel þremur mánuðum eftir að hann er haldinn?

,,Nei, það geri ég náttúrulega ekki. Það var auðvitað verið að ræða þessi samskipti stjórnarinnar við forstjórann. Það að hann hafi ekki verið á fundinum helgast af því að þarna var verið að ræða samskipti stjórnar og forstjóra."

,,Þann fund hefði ég glaður tekið"

Hörður óskaði eftir fundi með Daða Má í nóvember í fyrra til að ræða samskipti ráðuneytis og stjórnar. Honum varð ekki að ósk sinni því á Þorláksmessu fékk hann þau skilaboð frá stjórnarformanni að Daði Már hefði óskað eftir því að fundinum yrði breytt.

Þann 6. janúar fundaði Daði með stjórninni í ráðuneytinu þar sem rætt var um hlutverk stjórnar, stjórnarhætti og upplýsingamiðlun milli Landsvirkjunar og ráðuneytis. Hörður sat ekki þann fund.

Spurður út í hvers vegna svo hafi verið segir Daði Már að þar sé um misskilning að ræða.

,,Þetta er sitt hvor fundurinn. Ég funda árlega með stjórnum ríkisfyrirtækjanna. Á þeim fundum eru ekki forstjórarnir. Það var síðan bara ekki fylgt neitt eftir því að fá þennan fund með stjórn og forstjóra, en þann fund hefði ég glaður tekið."

Fjármálaráðherra mun gefa munnlega skýrslu um málefni Landsvirkjunar á þingfundi eftir hádegi á morgun, samkvæmt dagskrá Alþingis.

03.11.2026 19:53


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001133
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.