RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUĐSKILIĐ | ENGLISH | POLSKI

Rauđi hálfmáninn vill ađ árás Bandaríkjanna á brúđkaup verđi rannsökuđ

Rauđi hálfmáninn í Íran hvetur Alţjóđlega sakamáladómstólinn til ađ rannsaka mannskćđa árás Bandaríkjahers á brúđkaupsveislu á ţriđjudag. Herinn drap fjóra í árásinni, ţar á međal tvö börn, og sćrđi 67.

Rauđi hálfmáninn segir ađ árásin kalli á óháđa og hlutlausa rannsókn í ljósi ţess ađ hún hafi veriđ gerđ á almenna borgara og sendi erindi ţess efnis til dómstólsins í gćr. Samtökin telja ađ árásin geti talist stríđsglćpur.

Íranar hafa svarađ árásum Bandaríkjanna međ árásum á bandarískar herstöđvar í Kúveit í dag. Átök hafa fćrst í aukana síđustu daga. Bandaríkin hófu árásir á Íran á sunnudag. Enn er pattstađa og samningar milli ríkjanna ekki í sjónmáli. Íran hefur stjórn á umferđ um Hormússund og Bandaríkjamenn fylgja hafnbanni sínu enn fast eftir.

Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti ţví yfir í vikunni ađ Bandaríkjaher gćti ráđist á Íran hvenćr sem er. Íranar hafa síđustu daga gert árásir á herstöđvar Bandaríkjanna í Sameinuđu arabísku furstadćmunum, Kúveit, Barein og Jórdaníu.

03.09.2026 13:53


<< Til baka
VEĐRIĐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörđur: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstađir: 9,3°C, Skýjađ
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veđurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpiđ - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíđa Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000137
Taliđ frá 03.09.2026
Ţetta vefsvćđi er á engan hátt tengt RÚV eđa Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvćđiđ er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsćlla íslenskra vefsvćđa sem HTML kóđa fyrir eldri vafra.