Útlagapoppari syngur um auðnina Gítarleikarinn knái Reynir Snær Magnússon hefur komið víða við á undanförnum árum. Hann hefur snúið sér að sólóverkefninu Creature of Habit og gaf út lagið Myrká í byrjun árs sem fékk góðar viðtökur á Rás 2. Hann segir þetta hafa byrjað sem instrumental verkefni sem þróaðist í útlaga-popp með sungnum textum sem sækja innblástur í íslenskar þjóðsögur. Út er komið annað lag sem heitir Auðnin þar sem Reynir sjálfur sá um hljóðfæraleik, upptökur, pródúseringu og mix. Malen Áskelsdóttir og Birna Eyfjörð syngja bakraddir og textinn er eftir Júlíus Aðalstein Róbertsson. ,,Á yfirborðinu fjallar lagið um þá súrsætu tilfinningu að kveðja sumarið og finna haustið hellast yfir sig en ef dýpra er rýnt í textann þá eru ýmsar aðrar tilfinningar faldar þar inni," segir Reynir um lagið.
02.09.2026 14:01
<< Til baka
|
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C Stykkishólmur: 9,1°C Ísafjörður: 7,9°C Blönduós: 9,7°C Akureyri: 8,5°C Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað Höfn: 9,1°C Selfoss: 10,2°C Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni
DAGSKRÁ
Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá
GAMALT.NET
Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt
|
|