Miðflokkurinn er í mestri sókn samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups og bætir við sig rúmlega tveimur prósentustigum. Fylgi við aðra flokka er nánast óbreytt. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 47 prósent.
Samfylkingin er áfram stærst
Könnun Gallups var gerð 29. september til 1. nóvember. Samfylkingin er áfram stærsti flokkurinn hér á landi með rúmlega 29 prósent fylgi - tapar rúmu prósenti frá síðustu könnun og fengi 21 þingmann ef kosið yrði nú. Sjálfstæðisflokkurinn er næststærsti flokkurinn með 25 prósenta fylgi - sem er nánast það sama og síðast og fengi 18 þingmenn.
Miðflokkurinn bætir við sig
Miðflokkurinn bætir við sig rúmum tveimur prósentustigum og fær rétt rúm 17 prósent, fékk 15 síðast, og yrði kosið nú fengi Miðflokkurinn tólf þingmenn. Viðreisn mælist með tíu prósenta fylgi sem er örlítið minna en síðast og fengi miðað við það sjö þingmenn, en Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar um miðjan mánuðinn meðan könnunin var gerð.
Flokkur fólksins enn úti en tæpur helmingur styður ríkisstjórnina
Framsókn fær sex prósenta fylgi sem er nánast það sama og síðast - og gæfi fjóra þingmenn. Flokkur fólksins fengi tæplega fjögurra prósenta fylgi og engan þingmann og Vinstri græn fengju 3,5 prósent sem myndi duga fyrir einum kjördæmaúthlutuðum þingmanni.
Stuðningur við ríkisstjórnina er 47 prósent, sem er tveimur prósentustigum minna en síðast.
Heildarúrtaksstærð í þessari netkönnun Gallups var 12.906 manns og þátttökuhlutfall var 38,5 prósent.
Miðflokkurinn er í sókn samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Fylgi annarra flokka er nánast óbreytt. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 47 prósent.