RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,1°C
Stykkishólmur: 5,4°C
Ísafjördur: 6,7°C
Blönduós: 5,3°C
Akureyri: 6,6°C
Egilsstadir: 4,9°C
Höfn: 5,6°C
Selfoss: 3,8°C
Hveravellir: 0,4°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Missti röddina í nokkra daga í miðri lestrartörn: Rosalega löng og ,,suddaskemmtileg" bók

Karamazov-bræðurnir er stór bók um stórar spurningar, stórbrotin saga sem er eitt af stórvirkjum heimsbókmenntanna. Bókin er eftir Fjodor Dostojevskí og kom upphaflega út árið 1880. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi bókina úr rússnesku á sínum tíma og nú hefur Illugi Jökulsson lesið bókina inn sem kvöldsögu Ríkisútvarpsins.

Það var talsvert verk að lesa þennan doðrant upphátt, líkt og Illugi sagði frá í viðtali við Lestina.

Fyrsti lestur kvöldsögunnar Karamazov-bræðurnir var fluttur á Rás 1 á mánudag. ,,Það komu dagar þar sem ég las í sjö tíma samfleytt," segir Illugi Jökulsson sem las í kappi við tímann. Allir lestrarnir eru komnir í spilarann.

,,Þetta er rosalega löng bók. Þetta reyndust vera 1.200 blaðsíður sem ég las og lestrarnir eru 107. Þannig að þetta endist eitthvað sem kvöldsaga. Ég held að þetta hljóti að endast eitthvað fram á næsta ár," segir Illugi sem lét prenta bókina út á laus blöð til þess að hafa stærra letur.

Sem ungur maður las Illugi talsvert af bókum Dostojevskís, þar á meðal þessa í enskri þýðingu Davids Magarshacks.

,,Ég hélt satt að segja að þetta væri ekki bók sem maður þyrfti endilega að lesa aftur. Svo var ég beðinn að gera þetta og las hana og þetta er bara suddaskemmtileg bók," segir Illugi. Hann hafði eitthvað blaðað í þýðingu Ingibjargar á Karamazov-bræðrunum en ekki lesið hana alla.

,,Þýðing Ingibjargar er bráðfín, ég get eiginlega ekki hælt henni nóg. Ég reiknaði það út að þetta væru líklega um það bil 25 þúsund setningar í bókinni og ég rakst aldrei á setningu sem mér fannst eitthvað klúðurslega orðuð eða sem var erfitt að bera sér í munn eða neitt svoleiðis. Þannig að það auðveldaði náttúrulega verkið mjög hvað þetta er góð þýðing og svo er þetta bara miklu skemmtilegri bók en ég hélt."

Eins og búast má við í skrifum Dostojevskís er bókin full af ógurlegum umræðum um hin dýpstu rök tilverunnar, um Guð og Jesús, um gott og illt, heitar ástríður og allt mögulegt, segir Illugi. Hann hafi verið búinn að gleyma hvað bókin er spennandi, fyndin og skemmtileg en hún er í grunninn glæpasaga sem fjallar um morð á föður Karamazov-bræðranna.

Líkt og áður segir er bókin kvöldsaga Ríkisútvarpsins og verður það næstu vikurnar. Fyrir vikið las Illugi bókina upphátt sem er talsvert ólíkt því að lesa í hljóði eins og maður gerir allajafna.

,,Ef manni er sett fyrir það verkefni að lesa upphátt heila bók þá freistast maður í fyrsta lagi ekki til að hlaupa yfir heilu og hálfu síðurnar eins og maður myndi kannski gera með svona þykka bók," segir hann.

,,Maður náttúrlega tekur miklu betur eftir alls konar smáatriðum og hvernig hann byggir upp senur og samtöl og svona. Ég mæli eindregið með því að fólk lesi þetta upphátt þegar það er búið að hlusta á þennan upplestur minn. Að það prófi sjálft að lesa þetta, það tekur ekki nema 50 klukkutíma."

Illugi segir upplesturinn hafa gengið nokkuð vel. Að vísu missti hann röddina einu sinni og kom ekki upp orði í þrjá eða fjóra sólarhringa. Það er kannski ekki skrítið í ljósi þess hve stíf törn þetta var.

,,Það komu dagar þar sem ég las í sjö tíma samfleytt," segir hann. ,,Ég gerði í raun og veru ekkert sérstakt annað í mánuð heldur en að vakna á morgnana, athuga hvort ég væri enn þá með rödd og svo var bara sest við og byrjað að lesa."

Fyrsti lestur kvöldsögunnar Karamazov-bræðurnir var fluttur á Rás 1 á mánudag. ,,Það komu dagar þar sem ég las í sjö tíma samfleytt," segir Illugi Jökulsson sem las í kappi við tímann. Allir lestrarnir eru komnir í spilarann.

Ástæðan fyrir því að lesturinn var með þessu maraþonfyrirkomulagi er sú að lagt var upp með að öll bókin yrði tilbúin fyrir spilara RÚV strax og fyrsti lesturinn fór í loftið.

,,Þeir sem ekki geta stillt sig um að vita hver morðinginn er, þeir geta hlustað á þetta allt saman í einu lagi," segir Illugi sem hvetur fólk til að gera þetta með gamla laginu og opna fyrir útvarpið á kvöldin til að hlýða á söguna.

Fyrir forvitna verður þar að auki fjallað nánar um bókina og Dostojevskí í nýjum þáttum sem Gunnar Þorri Pétursson og Jóhannes Ólafsson stýra. Þættirnir heita Dostojevskí á meðal vor og eru á dagskrá Rásar 1 á sunnudögum.

Lestin ræddi við Illuga Jökulsson um lestur hans á Karamazov-bræðrunum sem er ný kvöldsaga á Rás 1. Hægt er að hlusta á viðtalið við Illuga og brot úr fyrsta þætti Dostjovskí á meðal vor í spilaranum hér ofarlega í færslunni. Þá má einnig finna fyrsta lestur Illuga á kvöldsögunni um miðbik færslunnar. Allir lestrar Illuga eru nú þegar komnir í spilara RÚV.

31.10.2026 07:00


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001180
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.