RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Loksins vann Manchester United

Manchester United vann loksins í kvöld eftir langa bið þegar liðið fagnaði 3-2 sigri á Roma í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Matias Soule kom Roma í 1-0 á 11. mínútu og sex mínútum síðar hafði Donyell Malen aukið forskot Rómverja í 2-0. United-menn fengu ófagra dóma frá sérfræðingum að loknum fyrri hálfleik, en í þeim síðari kveiktu leikmenn liðsins loks á sér.

Bruno Fernandes minnkaði muninn í 2-1 með marki úr vítaspyrnu á 58. mínútu og Matheus Cunha reyndist svo hetja United. Hann jafnaði í 2-2 með marki á 83. mínútu og skoraði svo sigurmark leiksins þremur mínútum síðar og tryggði Manchester United þar með dýrmætan 3-2 sigur.

Sigurinn var sannarlega langþráður hjá liðinu, sem hafði ekki unnið leik síðan 10. september þegar United vann þá Sabah frá Aserbaídsjan, 4-0 í Meistaradeildinni. Í millitíðinni komu níu leikir í öllum keppnum án sigurs hjá United-liðinu. Enn lengra er þó frá síðasta sigri liðsins í ensku úrvalsdeildinni, en eini sigurleikur Manchester United á þeim vettvangi á leiktíðinni kom gegn Ipswich 30. ágúst í leik sem lauk 5-2.

03.11.2026 21:55


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001177
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.