RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Meirihluti blóðmera sýndi sterk merki um ótta, kvíða og streitu meðan á blóðtöku stóð

Ný vísindarannsókn frá University of Bologna vekur spurningar um forsendur leyfis fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum hér á landi. Dýraverndarsamtök segja niðurstöðurnar sýna að endurskoða þurfi leyfi fyrirtækisins Ísteka. Matvælastofnun hefur sagt að leyfið verði tekið til endurmats ef ný vísindaleg gögn koma fram.

Rannsóknin var birt í vísindaritinu Veterinary Sciences og byggir á greiningu myndskeiða sem tekin voru á sex blóðmerabúum á Íslandi 2024. Þar var hegðun hryssna og meðferð þeirra metin á meðan á blóðtöku stóð.

Sterk merki um ótta, kvíða og streitu

Samkvæmt rannsókninni sýndi meirihluti hryssnanna sterk merki um ótta, kvíða og streitu meðan á blóðtöku stóð. Þá komust höfundar að þeirri niðurstöðu að aðgerðir hefðu ekki verið stöðvaðar þótt hryssur sýndu alvarleg streitueinkenni.

Dýraverndarsamtökin Animal Welfare Foundation og Tierschutzbund Zürich, sem stóðu að myndatökunum, segja niðurstöðurnar stangast á við þær forsendur sem lagðar voru til grundvallar þegar nýtt rekstrarleyfi var veitt.

Grípa til aðgerða ef velferð er ógnað

Í gögnum sem íslensk stjórnvöld sendu Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, kom meðal annars fram að gripið yrði til aðgerða ef velferð dýranna væri ógnað og að markmiðið væri að lágmarka streitu og sársauka.

Rannsóknin fjallar einnig um að í mörgum tilvikum hafi ekki verið beðið nægilega lengi eftir að staðdeyfing tæki gildi áður en stungið var í hryssurnar. Þá hafi óviðeigandi meðferð við rekstur og aðskilnað hryssna og folalda verið algeng á sumum búum.

Ber að endurskoða starfsleyfi Ísteka

Matvælastofnun hefur áður sagt að starfsleyfi Ísteka, sem vinnur verðmætt lyf úr hryssublóðinu, sé háð endurmati komi fram nýjar upplýsingar eða vísindalegar niðurstöður sem geti haft áhrif á mat stofnunarinnar. Dýraverndarsamtökin telja nú að sú staða sé komin upp og kalla eftir því að leyfið verði endurskoðað.

Fréttastofa RÚV hefur óskað eftir viðbrögðum bæði frá Matvælastofnun og Ísteka við niðurstöðum rannsóknarinnar.

03.11.2026 14:36


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001175
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.