Jón Kalman Stefánsson rithöfundur skrifar eftirmála um vin sinn Eirík Guðmundsson, rithöfund og útvarpsmann, í skáldsögunni Maríuklefanum eftir Eirík. Bókin kemur út í dag. Handritið að henni fannst fullfrágengið eftir að Eiríkur lést árið 2022, 52 ára. Maríuklefinn er bréfaskáldsaga þar sem bréfritari sendir Maríu hugleiðingar sínar frá Lissabon í Portúgal. Hann sér Maríu bregða fyrir á götum borgarinnar, sólin er heit og púrtvínið kallar fram undarlegustu myndir.
Handritið fannst að Eiríki látnum
,,Hann vildi breyta hugsunum okkar og skynjunum, ekki með einhverjum realisma heldur með hinu óræða. Hann vildi planta inn í okkur einhverri rödd sem myndi halda áfram að hljóma löngu eftir að þú læsir bókina," segir Jón Kalman.
Handritið að Maríuklefanum fannst þegar vinir Eiríks fóru í gegnum eigur hans að honum gengnum. Þar voru ýmsir pappírar, handrit og verk í vinnslu en þetta handrit virtist heildstætt og útgáfuhæft.
Stefndi alltaf á útgáfu
Bókina skrifaði Eiríkur eftir að hafa dvalið til skamms tíma í Lissabon á fyrstu árum aldarinnar. Eftir að fyrsta bók hans, 39 þrep til glötunar sem einnig var bréfaskáldsaga, kom út virðist hann hafa lagt handritið til hliðar. Miðað við umsóknir til launasjóðs rithöfunda stefndi hann þó alltaf á útgáfu Maríuklefans.
,,Skáldsagnaformið var honum mjög hugleikið og hann var sífellt að skoða það sem lesandi, fræðimaður og höfundur. Hann vildi ekki endurtaka sig og ég held að hann hefði viljað, eða dreymt um, að taka þetta handrit upp og færa það nær skáldsögunni," segir Jón Kalman sem ræddi bókina og vin sinn Eirík við Kristján Guðjónsson í Lestinni.
Skáldsagan Maríuklefinn eftir Eirík Guðmundsson kemur út í dag. Handritið að henni fannst fullfrágengið eftir að Eiríkur lést árið 2022, þá 52 ára. Útgáfu bókarinnar verður fagnað með málþingi í dag.
,,Sumir pistlanna hans voru eiginlega mjög nálægt skáldskap bara, flæðið í þeim og áferðin var mjög skylt skáldskapnum. Og stundum í skáldsögunum þá fann maður fyrir pistlahöfundinum, þannig að þetta rann allt saman," segir Jón Kalman og bendir á að það hafi verið mikill ákafi og taktur í stíl Eiríks og erfitt fyrir þá sem þekktu útvarpspistla hans að heyra ekki röddina lesa textann.
Útgáfu bókarinnar verður fagnað með málþingi í fyrirlestrarsal Eddu klukkan 16. Þar taka til máls Gunnþórunn Guðmundsdóttir og Ástráður Eysteinsson, prófessorar í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, rithöfundarnir Jón Kalman Stefánsson og Tómas Ævar Ólafsson, auk þess sem rödd Eiríks sjálfs fær að hljóma í brotum sem dagskrárgerðarmennirnir Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Gyða Sigurgísladóttir hafa fléttað saman.