RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,1°C
Stykkishólmur: 5,4°C
Ísafjördur: 6,7°C
Blönduós: 5,3°C
Akureyri: 6,6°C
Egilsstadir: 4,9°C
Höfn: 5,6°C
Selfoss: 3,8°C
Hveravellir: 0,4°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Merz vill konu í forsetastólinn

Friedrich Merz kanslari Þýskalands segist trúa því staðfastlega að næsti forseti landsins verði að vera kona.

Þetta sagði Merz á lokuðum fundi Kristilegra demókrata (CDU) í Berlín, samkvæmt heimildum þýsku fréttaveitunnar DPA. Merz er einnig sagður hafa lýst því yfir að hann ætli að leggja til frambjóðanda sem getur sameinað fólk, frambjóðanda úr pólitískri miðju.

Forseti Þýskalands gegnir fyrst og fremst táknrænu hlutverki. Núverandi forseti er Frank-Walter Steinmeier og hann er úr röðum Jafnaðarmannaflokksins (SPD). Hann tók við embætti árið 2017 og öðru kjörtímabili hans lýkur í mars á næsta ári.

Nokkrar konur hafa verið orðaðar við forsetastólinn. Þar á meðal eru Julia Klöckner, forseti þýska þingsins, Karin Prien fjölskyldumálaráðherra og Annegret Kramp-Karrenbauer, fyrrverandi formaður kristilegra demókrata og varnarmálaráðherra.

Búist er við að forysta Kristilega demókrataflokksins tilnefni forsetaframbjóðanda 9. nóvember.

03.11.2026 05:34


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001180
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.