RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Óttast að störf færist frá Suðurnesjum og eftirlitsmenn keyri frá Reykjavík

Fyrir helgi fengu 42 boð um starf hjá Umhverfis- og orkustofnun sem tekur við stórum hluta verkefna sem heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafa sinnt. Ný Stofnun atvinnuveganna sem einnig tekur við verkefnum auglýsti 20 störf og er enn að vinna úr umsóknum.

Ljóst er að einhverjir fá ekki nýtt starf og Ásmundur E. Þorkelsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, segir líklegt að þar verði aðeins einn eftir, en starfsmenn voru 6 áður. Ljóst sé að matvælaeftirliti verði sinnt frá höfuðborgarsvæðinu. Enn sé óljóst hvernig sveitarfélög manni verkefni sem eftir verða hjá þeim, enda sé reglugerðarbreytingum ólokið.

Magnús Kristjánsson, forstjóri Stofnunar atvinnuveganna, segir rétt að Suðurnes hafi verið talin með höfuðborgarsvæðinu þegar starfssvæði voru skilgreind í lögum um stofnunina. Það eigi hins vegar alveg eftir að taka ákvörðun um hvar Stofnun atvinnuveganna verði staðsett á því starfssvæði. Auglýst var eftir 10-14 starfsmönnum í matvælaeftirlit á svæðinu.

Í ársbyrjun störfuðu 78 hjá heilbrigðiseftirlitum en Ásmundur segir að kvarnast hafi úr hópnum síðan þá. Vegna yfirvofandi breytinga hafi ekki verið ráðið í allar stöður sem losnuðu.

03.11.2026 13:51


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001175
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.