RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Af hverju sleit KA sambandinu við Þór?

KA hefur slitið samstarfi sínu við Þór en liðin stilltu upp sameiginlegu liði í meistaraflokki kvenna í áraraðir. Lið Þór/KA hefur átt fast sæti í efstu deild kvenna frá 2006 en á sér lengri sögu.

Eftir að samstarfinu var slitið heldur Þór liði sínu í efstu deild en KA byrjar í neðstu deild, þeirri þriðju efstu. Þórsarar eru því með bæði karla- og kvennalið sitt í efstu deild en KA í neðri deildum, eftir fall KA-manna úr Bestu deild karla.

Á næsta sumri verður það í fyrsta sinn frá 1992 sem Akureyrarliðin stilla upp sitt hvoru liðinu á Íslandsmótinu. Liðið bjargaði sér frá falli í ár en hefur í tvígang orðið Íslandsmeistari.

Af hverju kemur þetta til núna?

Forráðamenn KA og Þórs útskýra málið. Sævar Helgason framkvæmdastjóri KA og Reimar Helgason framkvæmdastjóri Þórs ræddu málið. Hér má sjá viðtöl við þá.

KA sleit áralöngu samstarfi sínu við Þór þar sem Akureyrarfélögin tefldu fram sameiginlegu liði í Bestu deild kvenna í fótbolta. Liðin hafa stillt upp sameiginlegu liði síðustu 34 ár. Af hverju kemur þetta til núna?

Hvernig er saga liðsins?

Keppt var undir merkjum Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) á árunum 1993-1998 en Akureyrarliðið lék svo undir nafninu Þór/KA árin 1999 og 2000. Ári seinna kom svo Knattspyrnufélag Siglufjarðar (KS) inn í samstarfið og Þór/KA/KS spilaði í Íslandsmóti kvenna á árunum 2001-2005.

Frá 2006 hefur svo Þór/KA átt sæti á Íslandsmótinu og varð Íslandsmeistari tvisvar undir merkjum Þór/KA. Það var árin 2012 og 2017. Íslandsmótið á næsta ári verður því það fyrsta síðan árið 1992 sem Þór og KA tefla fram sitt hvoru kvennaliðinu.

Þór verður í Bestu deildinni á næstu leiktíð en KA verður með lið í 2. deild kvenna.

Félögin voru með sameiginlegt lið á Íslandsmóti karla í handbolta undir nafninu Akureyri handboltafélag á árunum 2006-2017 en luku því þá og síðan hafa KA og Þór átt sitt liðið hvort. Aðeins lið KA/Þórs í Olísdeild kvenna í handbolta er þar með eina liðið sem félögin tvö sameinast nú um.

Hlið KA - vilja fjölga tækifærum

Sævar Pétursson telur að tækifærin fyrir knattspyrnukonur á Akureyri séu ekki nógu mörg. Aðeins 11 byrjunarliðssæti eru í boði hverju sinni og einn hópur. Karlamegin er hægt að komast að bæði hjá Þór og KA.

,,Fyrst og fremst bara mikil fjölgun iðkenda hjá okkur á síðustu árum og starfshópur sem hefur verið svona að rýna þennan samning af okkar hálfu síðustu vikur komst að þeirri niðurstöðu að það væri í rauninni kannski meiri vilji okkar megin til að fjölga þeim stelpum sem fá að taka þátt í knattspyrnu á Akureyri."

,,Þetta snýst ekki um einhverja óánægju með Þór/KA. Þetta snýst fyrst og fremst um það að við viljum halda betur utan um þann hóp sem hefur verið að falla út úr starfinu á síðustu árum og viljum fjölga bara stelpum sem fá að æfa og spila fótbolta."

Sævar nefnir einnig að þeir Þórsarar sem eru ekki á nægilega háu getustigi til að leika í Bestu deild séu velkomnir í 2. deildar lið KA.

,,Þór verður með liðið í Bestu deild áfram og okkur finnst bara sjálfsagt að þær stelpur sem eru á því leveli verði áfram í Þór og um leið fögnum við því að þær stelpur kannski innan Þórs sem komast ekki í efsta levelið tökum fagnandi á móti þeim hér og bjóðum þeim að koma og byrja bara með okkur og fá að spila meistaraflokksbolta í bænum sínum."

Hlið Þórs - telja þetta ekki góða ákvörðun

Þórsarar vildu ekki slíta samstarfinu. Samkomulagið var með þeim hætti að það lið sem vildi slíta samstarfinu myndi byrja upp á nýtt í neðstu deild. Reimar Helgason framkvæmdastjóri Þórs nefnir að liðið hafi í tvígang orðið Íslandsmeistari og að sameining hafi verið kvennaboltanum á Akureyri fyrir bestu.

,,Ég held að þetta sé ekki góð ákvörðun en hún er bara komin og við þurfum bara að vinna með hana."

,,Ég held að það sé ekki tilviljun að þetta var gert á sínum tíma, er búið að vera í tugi ára. Og þarna liggja Íslandsmeistarar. Þú veist, það hefur nú ekki verið að sliga önnur félög í fótbolta á Akureyri þannig að það er virðing fyrir sögunni og menn hafa ekki verið í þessu samstarfi að gamni sínu, sko. Þannig að menn hafa nú fram að þessu haldið að þetta væri sem sagt kvennafótboltanum fyrir bestu."

Þórsarar ætla hins vegar ekki að leggja árar í bát þrátt fyrir að KA hafi slitið samstarfinu. Langt því frá.

,,Nú er staðan bara svona og við ætlum að koma bara á 100 kílómetra hraða inn í kvennafótboltann í Þór og gera þetta vel þannig að menn þurfa ekki að hafa áhyggjur af neinu öðru," sagði Reimar að lokum.

Hvað tekur við?

Óvíst er hver næstu skref eru. Að öllum líkindum þarf Þór að endursemja við þá leikmenn og þjálfara sem vilja vera áfram í Bestu deild. KA gæti reynt að kroppa í leikmenn. Leikmennirnir á Akureyri munu dreifast á liðin tvö.

KR sýndi nýverið að hægt er að komast nokkuð hratt úr 2. deild upp í þá bestu.

Ef til vill munum við sjá Akureyrarslag í Bestu deild sumarið einn daginn. Það yrði í fyrsta lagi sumarið 2029.

Óvíst er hver næstu skref verða. Að öllum líkindum þarf Þór að endursemja við þá leikmenn og þjálfara sem vilja vera áfram í Bestu deild. KA gæti reynt að kroppa í leikmenn. Leikmennirnir á Akureyri munu dreifast á liðin tvö.

03.11.2026 08:55


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001168
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.