|
|
 |
|
| |
Bergur með tvö Íslandsmet á HM Bergur keppti í D-riðli 85 kílóa flokksins á HM í dag. Keppendum er raðað eftir styrkleika í riðla, þeir bestu keppa í A-riðli og svo koll af kolli. D-riðillinn var fyrstur og Bergur gerði vel þar. Hann bætti Íslandsmet sitt í snörun þegar hann snaraði 135 kílóum. Hann lyfti svo 158 kílóum í jafnhendingu og lyfti því samanlagt 293 kílóum sem er Íslandsmet í samanlögðu í þyngdarflokknum. Bergur var í 4. sæti af 10 keppendum í D-riðlinum og í heildina í 36. sæti af 41 keppanda.
02.11.2026 09:37
<< Til baka
|
|
| |
|
| |
Gestir alls
     
Talið frá 06.09.2026 |
| |
|
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af
gamalt.net
veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.
|
| |
|
 |