Fram tók á móti Víkingi í níundu umferð Olísdeildar karla í handbolta í dag.
Jafnræði var með liðunum og þau skiptust á markaskorun fyrstu mínúturnar. Jafnt var í stöðunni 7-7 en Jón Karl Einarsson skoraði á 13. mínútu og kom Víkingum tveimur mörkum yfir, 7-9. Allt varð jafnt á ný og Framarar leiddu með einu marki í hálfleik, 17-16.
Fram var skrefi framar í upphafi síðari hálfleiks en Elvar Otri Hjálmarsson jafnaði fyrir Víking á 44. mínútu, 24-24. Þaðan gerðu Víkingar vel og skoruðu næstu fjögur mörk, 25-29.
Þá virtist allur vindur vera farinn úr Fram og Kristján Pétur Barðason kom Víkingi sjö mörkum yfir á 59. mínútu, 28-35. Lokamarkið skoraði Jón Karl Einarsson þegar hann innsiglaði átta marka sigur Víkinga, 28-36.
Sigur Víkinga þýðir að liðið fer upp í sjöunda sæti deildarinnar með sex stig, jafnmörg og Þór og Fram.
HK burstaði Selfoss í botnslag
HK tók á móti Selfossi í lokaleik umferðarinnar þar sem Kópavogsliðið vann öruggan sigur, 34-22. Það voru hins vegar gestirnir sem byrjuðu betur og skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins. Sölvi Svavarsson kom liðinu svo í 6-1 á 7. mínútu en HK spyrnti við og sneri leiknum sér í vil. HK leiddi með sex mörkum í hálfleik, 16-10. Þaðan hélt liðið forystunni og jók hana jafnt og þétt. Mest munaði 13 mörkum á liðunum en 12 mörkum munaði við leikslok, 34-22.
HK bættist því í hóp þeirra liða sem eru með sex stig. Selfoss er á botninum með eitt stig.
Nú er komið að landsleikjahléi og undankeppni EM tekur við.