Frakkland setur nýjar reglur um hraðtísku.
Frakkland er fyrsta landið í Evrópu sem setur svona reglur.
Hraðtíska eru föt sem eru framleidd mjög hratt og ódýrt.
Fötin eru oft léleg.
Fötin kosta lítið
Þess vegna kaupir fólk mjög mikið af fötum.
Frakkland vill að fólk kaupi minna af ódýrum fötum á netinu.
Nýju reglurnar eru um fyrirtækin Shein, Temu og AliExpress.
Fyrirtækin selja mjög mikið af ódýrum fötum.
Í sumum fötum frá Temu og Shein eru eiturefni.
Shein, Temu og AliExpress eru fyrirtæki í Kína.
Viðskipta·ráðuneytið í Kína mómælir nýju reglunum.
H&M og Zara eru evrópsk fyrirtæki.
Evrópsk fyrirtæki borga ekki gjaldið.
Sumir segja: Frakkar vilja vernda fyrirtæki í Evrópu.
Sumar búðir sem selja notuð föt á Íslandi vilja ekki fá föt frá Temu og Shein.