RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Erlendir ráðamenn spyrja Þorgerði Katrínu út í Ólaf Ragnar

Erlendir ráðamenn hafa spurt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra út í tjáningu Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta, á samfélagsmiðlum. Þeir hafa spurt út í tíst hans og endurtíst á málflutningi rússneskra ráðamanna.

Rússar reyni að beina athyglinni frá árásum þeirra

Þessu greindi Þorgerður Katrín frá í viðtali við Önnu Lilju Þórisdóttur fréttamann eftir ríkisstjórnarfund í dag. Hún var spurð um yfirlýsingu rússneska sendiráðsins sem lýsti undrun og harmi yfir því að hún teldi deilingar forsetans fyrrverandi á málflutningi rússneska utanríkisráðherrans alvarlegri en athugasemd framkvæmdastjóra Flokks fólksins við færslu Frakklandsforseta á samfélagsmiðlinum X.

Utanríkisráðherra segir miður að fyrrverandi forseti hafi ýtt undir skýringar og sjónarmið Rússa eftir innrás þeirra í Úkraínu. Hún hafi þurft að skýra baksögu hans fyrir erlendum ráðamönnum.

Þorgerður Katrín segir yfirlýsingu rússneska sendiráðsins í dag dæmigerða útúrsnúninga ríkis sem reyni að beina athyglinni að öllu öðru en árásum þeirra í Úkraínu.

Þögn stjórnarandstöðunnar um tíst fyrrverandi forseta

,,Það sem mér finnst hins vegar áhugavert er: Á meðan að þetta er þá er ekki verið að gera neinar athugasemdir við viðbrögð og tíst, meðal annars fyrrum forseta Íslands, sem raunverulega hefur rödd þarna úti í heimi. Það er fylgst með því sem hann meðal annars segir. Það hafa verið gerðar athugasemdir, eða ég hef verið spurð að því á erlendum vettvangi, um þetta sjónarmið hans, hvernig hann ýtir undir narratívu og sjónarmið Rússa."

Hún segir það alvarlegt að verið sé að endurtísta málflutningi utanríkisráðherra Rússa sem segir aðgerðir Atlantshafsbandalagsins til að auka öryggi og eftirlit á Atlantshafi geta valdið óróa og ýtt undir frekari hervæðingu Rússa.

,,Mér finnst þetta algjörlega úr takti að taka undir eitthvað sem beinir gagnrýni að NATO."

Hún bendir á að Íslendingar hafi lengi hvatt til þess að viðvera og eftirlit séu aukin á Norður-Atlantshafi til að verjast ógnum sem komi fyrst og fremst frá Rússum.

Lætur ekki sendiráðið eða stjórnarandstöðuna breyta fókusnum

,,Ég ætla ekki að láta rússneska sendiráðið eða stjórnarandstöðuna draga minn fókus frá því sem raunverulega er í gangi. Ísland stendur með Úkraínu gegn blóðugu árásarstríði Rússa og við þurfum að standa þéttar sem aldrei fyrr núna þegar harður vetur er fram undan."

Þorgerður Katrín segir að síðast hafi hún verið spurð út í málflutning Ólafs Ragnars á öryggisráðstefnunni í München í Þýskalandi. Þá hafi hún lýst pólitískum ferli hans og að hann skýrði kannski afstöðu Ólafs í dag.

Ísland stendur með Úkraínu, segir Þorgerður Katrín. Hún segir miður að fyrrverandi forystumaður íslenska lýðveldisins beiti rödd sinni með þeim hætti að ýta frekar undir sjónarmið og narratívu Rússa eins og Ólafur Ragnar hafi gert nokkrum sinnum síðan Rússar réðust inn í Úkraínu.

03.11.2026 11:49


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001175
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.