Það kviknaði í húsi á Laugavegi í Reykjavíkí nótt.
Hótel Skjaldbreið og fatabúiðin Andrá eru í húsinu.
Eldurinn byrjaði í kjallaranum.
Starfsfólk hótelsins hjálpaði öllum gestum út.
Gestirnir fengu herbergi á öðru hóteli.
Tveir menn önduðu að sér reyk.
Þess vegna fóru mennirnir á spítala.
Lögreglan handtók einn mann út af eldinum.
Kristófer Oliversson er forstjóri hótelsins.
Kristófer segir:
Hótelið verður lokað í nokkra daga eða vikur.Það þarf að þrífa allt hótelið.Það er brunalykt á hótelinu.Það þarf líka að laga skemmdir í kjallaranum.