Bakar brauð í viðarofni samkvæmt alda gamalli hefð Mathias hefur búið hér á Íslandi í 12 ár. Hann og Ella Vala Ármannsdóttir, eiginkona hans, reka brauðgerðina Böggvisbrauð á bænum Böggvisstöðum í Svarfaðardal. Bakgrunnur Mathiasar er í tónlist, hann er menntaður söngvari með meistaragráðu í miðaldatónlist. Bakstursbakteríuna fékk hann þegar hann hlustaði á viðtal í franska ríkisútvarpinu við bónda og bakara sem ræktaði eigið korn, malaði það, bakaði brauð og seldi á markaði í Frakklandi. Hann fékk ofnasmið frá Frakklandi til þess að hlaða bakaraofninn að mörg hundruð ára gamalli hefð. Það tók mánuð að hlaða ofninn sem vegur um 50 tonn. Þú getur heyrt ævintýralega sögu Mathiasar og allt um brauðbaksturinn í spilaranum hér fyrir ofan.
02.09.2026 20:00
<< Til baka
|
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C Stykkishólmur: 9,1°C Ísafjörður: 7,9°C Blönduós: 9,7°C Akureyri: 8,5°C Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað Höfn: 9,1°C Selfoss: 10,2°C Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni
DAGSKRÁ
Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá
GAMALT.NET
Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt
|
|