Sölvi Halldórsson skrifar:
Verklund er mikils metin sem mannkostur. Að fara af stað í framkvæmdir fær fólk til að tala og kaffistofan er tilbúin að hlusta þegar sagt er frá að til standi að taka baðherbergið í gegn. Fólk hefur skoðun á flísum, plast- eða harðviðarparketi. Hvort eigi að halda veggnum eins og hann er eða brjóta niður til að opna frá eldhúsi inn í stofu.
Þess vegna á ný bók Hjálmars Sveinssonar eflaust eftir að höfða til margra. Húsið - hlýskeið er skáldævisaga sem, meðal annars, segir samviskusamlega frá framkvæmdum á tveggja hæða íbúðarhúsi á Baldursgötu 10. Eigendur þess, sögumaðurinn og kona hans, hafa ákveðið að reisa nýja hæð ofan á húsið. Hún á að vera 100 fermetrar og verkfræðingurinn á teiknistofunni sem þau fá í lið með sér reiknar út að verkið muni kosta um 50 milljónir. Fyrir framkvæmdunum taka þau óverðtryggt lán með fastbundnum vöxtum fyrstu þrjú árin. Hvað verður mánaðarlega afborgunin af því há til að byrja með? Og hvað með að þremur árunum liðnum? Ekki ætla ég að spilla lestrargleðinni fyrir lesendum.
Fasteignir og framkvæmdir eru og hafa verið í deiglunni í íslensku menningarlífi. Á fjölum Þjóðleikhússins er leikrit Friðgeirs Einarssonar, Nýtt eldhús eftir máli, sem fjallar um hjón sem vilja setja upp nýja eldhúsinnréttingu. Leikfélag Akureyrar sýnir í vetur litáíska verkið Fasteignamartröðin sem fjallar um fyrstu íbúðakaup. Þá eru fjögur ár síðan arkitektinn og rithöfundurinn Anna María Bogadóttir vakti athygli með margmiðlunarverkinu Jarðsetning, sem fjallaði um niðurrif Iðnaðarbankans við Lækjargötu með ævisögulegu ívafi. Þá má nefna ljóðabók Elínar Eddu Þorsteinsdóttur Núning (2022) og skáldævisöguna Jarðnæði (2011) eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur, sem báðar skoða veruleika okkar út frá fasteignum, framkvæmdum og íverustöðum.
Sögumaðurinn í bók Hjálmars Sveinssonar, eða eigandinn eins og hann er nefndur í baksíðutextanum, segir frá sér og verkefni sínu á afarskilmerkilegan hátt. Hann er 72 kíló að þyngd, hleypur fimmtán kílómetra á áttatíu og fimm mínútum og til að reisa stillansana í kringum húsið á Baldursgötu 10 notar hann 860 metra af óhefluðu timbri.
Höfundur lætur orðið gjarnan ganga milli persóna í bókinni. Iðnaðarmenn, smiðir, vinir og og fólk sem eigandinn rekst á (eða ræðst að honum úti á götu) tala til skiptis, þessar ólíku raddir breikka söguna og skapa innra með henni ákveðinn bæjarbrag.
Hér er arkitektinn sem eigandinn ræður til að teikna nýju hæðina með orðið:
Það er eins og hver ný kynslóð hafi sett nýja klæðningu. Fyrst bárujárn, svo var hent á það múrhúð, kannski þrjátíu árum seinna. En það er í sjálfu sér gott að það var ekki múrað beint á pappann á timburveggnum. Bárujárnið hleypir nefnilega lofti að veggnum undir hábárunni þannig að timburklæðningin andar, ef þetta er rétt gert. En það hefur sennilega ekki verið gert hér. Svo löngu síðar, ég giska á áttunda eða níunda áratuginn, þá var negld grind á forskalaða vegginn, einangrað með frauðplasti og veggnum lokað með þessu stallaða bárujárni sem þú reifst af.
Húsið á Baldursgötu 10 myndar innra virki sögunnar, það er grunninn eða grindina sem hinir hlutar sögunnar klæða. Samviskusemi sem fer í lýsingar á framkvæmdunum, og skýrt markmið þeirra, myndar traust mótvægi við aðra hluta sögunnar, þar sem athyglin fær að reika, og textinn fylgir eigandanum eftir í grúsk og ýmsa spássitúra. Bókaklúbbinn sem eigandinn sækir og prósaískan hversdag eigandans í borginni Reykjavík.
Samhliða framkvæmdunum fer eigandinn í rannsókn á lífshlaupi hins þýska Harry Schrader, sem einnig gekk undir nafninu Haraldur Ómar, og bjó í húsinu á Baldursgötu 10 á sjöunda áratug síðustu aldar. Árið 1968 brutust inn til hans ungir menn og gengu í skrokk á honum. Í dómsskjölum kemur fram að árásarmennirnir hafi ráðist á Harald ,,vegna óeðlilegra kynhvata sem hann væri haldinn".
Haraldur átti í ástarsambandi við og bjó með 15 ára dreng, sem á þeim tíma var skírlífisbrot, og flækir myndina af málinu eins og það blasir við í dag. Eftir árásina var Haraldi neitað um aðhlynningu og hann var sendur í fangelsi frekar en á spítala þrátt fyrir alvarleg meiðsl. Er þá ekki allt upptalið en eins og gefur að skilja er málið þungt og margslungið, og eitt þeirra þar sem íslenska réttarríkið hefur sýnt sitt versta andlit. Sem slíkt er það einkennilegt sem hliðarsaga í texta skáldævisögu, þar sem trúnaðarsamningurinn milli lesanda og höfundar er í eðli sínu svikull. Í þannig texta er erfitt að segja til um hvað er satt og rétt, hvað aðlagað og hvað fellt út til þess að efnið falli að rökvísi einmitt þessa bókmenntaverks.
Siðferðilegar spurningar sem þessar eru auðvitað ekkert nýtt í umfjöllun um skáldævisögur. Þó hefði verið gott að sjá meira grúsk og gagnrýnna sjónarhorn á þennan glæp og dóminn sem féll, fyrst svo sárt og snúið mál er á annað borð tekið til umfjöllunar.
Því miður, eða sem betur fer - ég er ekki alveg viss - er þetta ekki veigamesti hluti sögunnar. Höfundur stillir þó upp ýmsum hliðstæðum milli lífshlaupa Haralds og eigandans. Þau tengsl (og fleiri gegnumgangandi þemu) dýpka krókótta slóð sögunnar og leggja til einhverja undiröldu sem togar mann áfram við lesturinn. Það á svo sem ekki við um alla útúrdúrana en þeir eru oftast skemmtilegir og meirihlutinn ræður.
Ein af áhugaverðari hliðum textans er jafnvægið milli ytri heims eigandans og innaníu hans. Orðgnóttin í kringum efnisheim framkvæmdanna og naumari skammtar um tilfinningalífið vega salt á nokkuð lunkinn hátt. Pælingar, spælingar, líf og dauði, rekast utan í rakasperrur, þéttiull og krossviðarplötur sem fást ekki niður á Byko Granda, heldur bara uppi í Breidd.
Þegar upp er staðið er dálítið erfitt að átta sig á hvað þessi margstrenda saga ætlar sér. Eins og kemur fram í bókinni, er ekkert deiluskipulag í gildi á reitnum í kringum Baldursgötu 10. Segja má að Húsið - hlýskeið beri merki þess. Á sama tíma gæti einmitt það heillað marga.
Sölvi Halldórsson, bókmenntagagnrýnandi Víðsjár, rýnir í nýjustu bók Hjálmars Sveinssonar, Húsið: Hlýskeið.
Sölvi Halldórsson flutti pistill sinn í Víðsjá á Rás 1. Sölvi er skáld og íslenskufræðingur.