Brotist var inn í Innu, námsumsjónarkerfi framhaldsskólanna, í síðustu viku. Framhaldsskólanemi nýtti sér veikleika í innskráningarkerfi til að fara inn á aðganga kennara og nemenda. Viðkomandi reyndi í einhverjum tilfellum að hafa áhrif á einkunnir og mætingu nemenda.
Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar staðfestir að öryggisbrestur hjá Innu sé á borði stofnunarinnar. Þeim hafi borist þrjár tilkynningar um brestinn og unnið sé að því að meta umfang hans. Samkvæmt upplýsingum sem stofnunin sé með hafi hann náð til 16 framhaldsskóla.
Í tölvupósti til starfsfólks Menntaskólans við Hamrahlíð kemur fram að nemandi úr öðrum skóla hafi nýtt sér veikleika í Outlook-innskráningu til að fara inn á aðganga kennara, meðal annars í MH. Vitað sé hvaða nemandi standi á bak við verknaðinn. Tekið sé á málinu í skóla viðkomandi og búið sé að loka aðgangi hans að Innu og Menntaskýi.
Í annað sinn á þessu ári sem brestur kemur upp
Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor við Menntaskólann í Reykjavík, segist líta málið mjög alvarlegum augum. Álíka öryggisbrestur hafi komið upp í vor en þá hafi nemendur vakið athygli á honum.
Þá hafi skólinn verið fullvissaður um að gallinn hefði verið lagaður en nú sé þessi staða komin aftur upp á innan við ári.
Að þessu sinni hafi nemandi úr öðrum skóla komist inn á aðganga starfsfólks og nemenda. Viðkomandi hafi reynt að breyta ýmsu, meðal annars einkunnum og mætingu nemenda. Ekki liggi fyrir hvort það hafi tekist í einhverjum tilfellum.
Tugir þúsunda notenda og heilsufarsgögn undir
Skólinn hafi tilkynnt málið til Persónuverndar og Innu. Svör hafi borist frá Innu um að verið sé að vinna í málinu en Sólveig kveðst ekki sátt við að svona lagað geti komið upp þegar svo viðkvæm gögn séu undir.
,,Ég held að skólameistarar myndu kjósa að það kæmi einhvers konar utanaðkomandi úttekt á þessum öryggisbresti og við séum þá fullvissuð um að gögnin okkar þarna séu örugg og að við getum notað þetta kerfi Innu áfram því framhaldsskólar landsins greiða auðvitað helling fyrir að nota þetta."
Hún segir gífurlegt magn upplýsinga undir bæði hjá núverandi og fyrrverandi nemendum, þar á meðal heilsufarsgögn.
,,Þetta eru tugir þúsunda einstaklinga sem hafa verið í framhaldsskólum landsins og allir framhaldsskólar landsins hafa notað Innu sem forrit til þess að halda utan um allar mætingaskráningar, allar einkunnir og allt slíkt bara síðustu 10-20 árin."
Vita ekki hvað viðkomandi gekk til
Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir, skólameistari í Borgarholtsskóla, staðfestir að bresturinn hafi einnig náð til skólans. Sá sem hafi brotist inn hafi reynt að sækja upplýsingar um einn nemanda og einn kennara í skólanum.
Helga Jóhannsdóttir, rektor í Menntaskólanum við Hamrahlíð, segir í samtali við fréttastofu að viðkomandi hafi reynt að breyta miðannarmati hjá einhverjum nemendum en það hafi ekki tekist.
Matið hafi ekki haft áhrif á einkunnir nemenda heldur sé það eins konar stöðumat á því áhvernig nemendum gangi. Skólinn viti þó ekki hvað nemandanum hafi gengið til eða hvaða upplýsingar hann hafi séð.
Skólameistarar funduðu um brestinn
Helga Kristín Kolbeins, skólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum og formaður skólameistarafélagsins, segir félagsmenn hafa fundað um brestinn. Hún segir hann ekki hafa náð til Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum þó að grunsemdir hafi vaknað um það í fyrstu.
Hún segir brestinn bagalegan en gott að búið sé að bregðast við honum. Atvikið hafi sýnt fram á mikilvægi viðbragðsáætlana í tilfellum sem þessum.
Lokað hafi verið fyrir innskráningarleiðir í gegnum Microsoft og Google til að bregðast við brestinum. Því hafi einungis verið hægt að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum um tíma. Búið sé að opna fyrir innskráningarleiðirnar aftur.
Inna hefur hvorki orðið við beiðni fréttastofu um viðtal né svarað skriflegri fyrirspurn um brestinn.