Búið er að bera kennsl á alla þá sem fórust í lestarslysinu á Spáni á miðvikudagsmorgun. 69 manns létust í slysinu og 200 voru særðir, sumir alvarlega.
54 þeirra sem létust voru Spánverjar og 15 voru erlendir ríkisborgarar. Þar af voru fjórir Bandaríkjamenn, tveir Ástralir, tveir Japanir og einn hver frá Argentínu, Kanada, Frakklandi, Mexíkó, Portúgal, Túnis og Tékklandi.
Nokkurn tíma tók að bera kennsl á þá látnu þar sem mörg líkin voru illa farin. Spænska þjóðvarðliðið kom upp skrifstofum í nálægum borgum og bæjum þar sem ættingjar gátu gefið DNA-sýni svo hægt væri að bera kennsl á þá sem var saknað.
Þá var tímabundnum blóðgjafastöðvum einnig komið upp þar sem fleiri þúsund manns mættu og gáfu blóð.
Mannleg mistök stjórnstöðvar
Lestarslysið er eitt það mannskæðasta í Evrópu á þessari öld. Sextíu og níu manns létust í slysinu þegar hraðlest ók á miklum hraða aftan á kyrrstæða lest með þeim afleiðingum að margir vagnar fóru út af sporinu.
Skömmu áður hafði sjálfvirkt stjórnkerfi lagst niður á 69 kílómetra kafla lestarteinanna, sem varð til þess að allar lestir á þeim kafla staðnæmdust. Stjórnstöð sem stýrir lestarumferð gaf annarri lestinni leyfi til þess að keyra af stað þó að lestarstjóri kyrrstæðu lestarinnar hafi verið búinn að tilkynna að hún gæti ekki komið lestinni aftur af stað.
Þetta er annað slysið af þessu tagi á Spáni á þessu ári en í janúar létust fjörutíu og sex í lestarslysi í Andalúsíu.