Bandaríska kántrísöngkonan Dolly Parton mun fá nýja stjörnu á Frægðarstíg Hollywood (e. Hollywood Walk of Fame) á föstudaginn, eftir að skemmdarverk var unnið á þeirri sem fyrir var. Parton lést í síðustu viku, áttræð að aldri.
Skemmdarvargar rispuðu stjörnuna á mánudaginn og skemmdu nafn hennar á stjörnunni verulega. Stjarnan hennar var fyrst afhjúpuð árið 1984 til heiðurs tónlistarferli hennar.
Ný stjarna Dolly Parton verður afhjúpuð á Frægðarstíg Hollywood á föstudaginn eftir skemmdarverk á þeirri sem fyrir var. Minningarmunir frá síðustu viku voru fjarlægðir vegna fyrirhugaðra viðgerða á sprungum á stjörnunni.
Ana Martinez, starfsmaður hjá viðskiptaráði Hollywood, sagði að þeir minningarmunir sem fólk hafði skilið eftir við stjörnuna höfðu verið fjarlægðir fyrir fyrirhugaðar viðgerðir á sprungum í stjörnunni þegar skemmdarverkin voru unnin.
Hollywood Historic Trust, samtökin sem sjá um viðhald þúsunda stjarna meðfram Hollywood-breiðgötu, sögðu að ný stjarna yrði tilbúin innan fárra daga.
,,Hollywood Historic Trust og viðskiptaráð Hollywood eru stolt af því að heiðra arfleifð Dolly Parton með því að setja upp nýja stjörnu í stað þeirrar gömlu," skrifuðu samtökin á Instagram.
,,Nýja stjarnan verður til sýnis á föstudaginn."