Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gaf út í dag bækling til að leiðbeina fólki hvernig það getur undirbúið sig fyrir alvarlega atburði eða rof á grunnþjónustu.
Mikilvægt fyrir fólk að renna yfir gátlistann
Í bæklingnum má finna gátlista yfir nauðsynjar; allt sem þarf til að geta komist af í þrjá daga. Bæklingurinn verður sendur rafrænt í gegnum island.is og á verumvidbuin.is.
Þá verður honum einnig dreift í prentaðri útgáfu á völdum stöðum um land allt frá morgundeginum til sunnudags, með aðkomu björgunarsveita Landsbjargar, samhliða sölu neyðarkallsins.
,,Ég held að það sé mikilvægt fyrir fólk að renna yfir þennan gátlista. Það er ýmislegt til á heimilum landsins og hvað það er á næstu vikum og mánuðum sem við getum bætt í. Öll lítil skref í áttina að því að efla viðbúnað heimilisins eru mjög jákvæð," segir Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri Almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra.
Rætt var við hann í Kastljósþætti kvöldsins.
,,Við erum ekki að biðja að fólk fari í stórinnkaup eða hlaupi út í búð og geri einhverjar drastískar ráðstafanir. Metum þetta fyrir okkur sjálf og hvar við getum bætt í."
Runólfur segir að kannanir hafi verið gerðar hér á landi um hversu vel undirbúið fólk sé almennt.
,,Það var ekki hátt hlutfall. Svona nokkuð í góðu samræmi við Norðurlöndin. Við erum að tala um svona tuttugu og fimm upp í þrjátíu prósent sirka."
En betur má ef duga skal segir Runólfur. Hann sé þess fullviss um að þorri almennings renni yfir gátlistann.
,,Það er ekkert langt síðan við bjuggum við það að náttúruváin var helsta ógnin sem við þurftum að hafa áhyggjur af. En síðastliðin fjögur ár hafa fært okkur sönnun um það að aðstæður hafa breyst og ég held að það sé alveg jarðvegur fyrir því að fólk hlusti á."
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gaf út í dag bækling til að leiðbeina fólki hvernig það getur undirbúið sig fyrir alvarlega atburði eða rof á grunnþjónustu. Um 30% íslenskra heimila eru undirbúin, en betur má ef duga skal segir sviðsstjóri.