RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Segir utanríkisráðherra tala í ,,götustelpustíl"

Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands gefur lítið fyrir orð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um að hann ýti undir sjónarmið Rússa í innrásinni í Úkraínu og að hún hafi ítrekað þurft að útskýra málflutning hans og baksögu á alþjóðavettvangi, nú síðast á öryggisráðstefnunni í München.

Þetta sagði hún í viðtali við fréttastofu eftir ríkisstjórnarfund í morgun.

Ólafur Ragnar segir ráðherrann veruleikafirrtan og bitran vegna útkomu þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst.

Hvorki sæmandi né svaravert

,,Þessi nýi götustelpustíll í umræðum um utanríkismál er nú hvorki sæmandi né svaraverður. Og mér finnst sorglegt að í stað efnisríkrar umræðu sé ráðherra ítrekað að temja sér dylgjur og rangfærslur," segir Ólafur Ragnar spurður um viðbrögð við ummælum ráðherra.

Tilefni þessa var meðal annars að Ólafur endurtísti á samfélagsmiðlinum X færslu Lavrovs þar sem hann vakti athygli á greinargerð sinni um Norðurslóðir.

,,En það felur auðvitað ekki í sér að það sé verið að lýsa yfir samþykki við allt það sem sagt er í slíkum skjölum," segir hann.

Ólafur Ragnar Grímsson segir ummæli utanríkisráðherra um að hann ýti undir sjónarmið Rússa hvorki sæmandi né svaraverð. Hann segir ráðherra bitran vegna niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst.

Þorgerður Katrín sagði í viðtali við fréttastofu eftir ríkisstjórnarfund í morgun að það væri miður að Ólafur beitti rödd sinni með þessum hætti.

Á Alþingi í gær sagði hún að deiling hans á áðurnefndi færslu Lavrovs væri alvarlegri en ummæli Heimis Más Péturssonar framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins á X þar sem hann hvatti Frakklandsforseta til að senda hermenn á vígvöllinn í Úkraínu og hafa kjarnavopn til reiðu.

Ólafur Ragnar segir að ráðherra hafi ítrekað komið með slíkar fullyrðingar um sig opinberlega.

Segist aldrei hafa lýst yfir stuðningi við málstað Rússa

,,Og nú eru dregnir fram einhverjir ónafngreindir menn í München. Staðreyndin er auðvitað sú að ég hef aldrei lýst yfir stuðningi við nokkur sjónarmið Lavrovs eða Rússa varðandi innrásina í Úkraínu. Og ég vona nú bara að ráðherrann fari að róa sig og fari að temja sér ítarlegri og efnisríkari umræðu."

Vonar að biturleikinn fari að rjátlast af ráðherra

Ólafur Ragnar segist hafa velt fyrir sér hvort þessi viðbrögð utanríkisráðherra helgist af því að áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslunni, en sjálfur var hann einn helstu talsmanna NEI-hreyfingarinnar.

Það var mikið lán fyrir lýðveldið að þjóðin skyldi hafna því að svona veruleikafirrtur ráðherra fengi umboð til að semja um framtíð Íslands við Evrópusambandið, En ég vona nú að biturleikinn vegna þess fari nú að rjátlast af ráðherranum.

Segir engan utanríkisráðherra hafa leyft sér slíka framgöngu fyrr

Ólafur Ragnar segir framgöngu og málflutning Þorgerðar Katrínar fordæmalausan.

,,Ég er nú lengi búinn að fylgjast með íslenskum utanríkisráðherrum. Ég hef aldrei séð nokkurn þeirra leyfa sér framgöngu eins og ráðherrann hefur, fyrst í Sprengisandi og núna aftur, talið sér sæmandi varðandi mig."

03.11.2026 16:02


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001175
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.