RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

Útlit fyrir sterkasta El Niño í áratugi með miklum öfgum í veðri

El Niño-veðurfyrirbærið gæti verið mjög öflugt næstu mánuði og á líklega eftir að hafa áhrif á veður víða um heim alveg fram í febrúar. Alþjóðaveðurfræðistofnunin sagði í dag að fyrirbærið eigi eftir að færast í aukana á næstu mánuðum og hafa mikil áhrif á rigningu og hitastig og þar með hættuna á flóðum, þurrkum og öfgum í hita.

Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í dag að El Niño yrði með versta móti. ,,Sjávarhitinn fer hækkandi, hitastig rís og heimurinn stendur frammi fyrir hættunni á öfgum í veðri.

Celeste Saulo, yfirmaður Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar, sagði að El Niño gæti orðið öflugri en nokkur dæmi eru um síðan mælingar hófust.

Þrír fellibyljir eru í gangi á Kyrrahafi og er fátítt að svo margir fellibyljir gangi yfir á sama tíma.

,,El Niño skapar aðstæðurnar fyrir þessa storma, sem magnast upp af hlýjum sjó," sagði Julia Cole, loftslagsvísindamaður við Háskólann í Michigan, í viðtali við AFP. ,,Þegar Kyrrahafið er hlýrra en venjulega fjölgar sterkum stormum."

03.09.2026 08:57


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000137
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.