Lumar þú á næsta jólasmell? Rás 2 óskar eftir framlögum í árlega jólalagakeppni stöðvarinnar. Umsækjendur hafa frest til miðnættis sunnudaginn 22. nóvember og mun þá valnefnd Rásar 2 velja þau lög sem keppa til úrslita.
Loks er það hlutverk hlustenda og dómnefndar að kjósa sjálft sigurlagið en það verður rækilega kynnt undir lok nóvember. Kosningin fer síðan fram í smáforritinu RÚV stjörnur.
Skráning í keppnina og móttaka laga fer fram í gegnum gáttina mitt.ruv.is.
Reglurnar eru einfaldar:
Lagið þarf að vera frumsamið og það má ekki hafa heyrst áður opinberlega.Eins er óheimilt að senda inn lög sem samin hafa verið með gervigreind og gætu þátttakendur þurft að færa fyrir því sönnur að lagið hafi ekki verið samið og tekið upp með slíkri tækni.
Úrslit jólalagakeppninnar verða svo kunngjörð á aðventugleði Rásar 2 þann 3. desember.
Sigurvegarar síðustu ára
2025: Andri Eyvinds með lagið ,,Bakvið ljósin"
2024: FLOTT með lagið ,,Ó, Grýla taktu þér tak"
2023: Andrés Vilhjálmsson með lagið ,,Skál fyrir Vésteini"
2022: Alda Dís Arnardóttir með lagið ,,Velkominn desember"