RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
ÍBV landaði sigri en situr enn í sjötta sæti

ÍBV tók á móti Stjörnunni í níundu umferð Olísdeildar karla í handbolta í dag. Stjarnan stóð í Eyjamönnum sem tókst þó að landa sigrinum, 29-26.

Kristófer Ísak Birgisson kom ÍBV tveimur mörkum yfir á 11. mínútu, 7-5. Þaðan áttu Stjörnumenn góða syrpu og Gauti Gunnarsson skoraði úr hraðaupphlaupi á 24. mínútu og Stjarnan leiddi, 12-13. Garðbæingar leiddu í leikhléi, 16-18.

Atli Steinn Arnarson kom Eyjamönnum aftur yfir á 35. mínútu, 20-19, og sex mínútum síðar kom hann liðinu fjórum mörkum yfir, 23-19.

Þaðan þurftu Stjörnumenn að elta en Matthías Dagur Þorsteinsson jafnaði fyrir Sjörnuna á 46. mínútu, 23-23.

ÍBV náði þó forskotinu á nýjan leik og liðið sigldi sigrinum í höfn með Atla Stein í fararbroddi því hann skoraði fjórtán mörk í dag.

Eyjamenn sitja þó eftir sem áður í sjötta sæti en nú með tíu stig. Stjarnan er í níunda sæti með fimm stig.

Þrír leikir eru til viðbótar í dag

15:00 Þór - FH17:00 Fram - Víkingur18:00 HK - Selfoss

01.11.2026 15:12


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001168
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.