Hundruð þúsunda skora á frönsk stjórnvöld að loka sjónvarpsfréttastöðinni CNews vegna ásakana um að stöðin kyndi undir hatursorðræðu sem leiði til ofbeldis.
Krafan er sett fram á undirskrifarlista á vef franska þjóðþingsins og í gær náði hann 500 þúsund undirskrifum, samkvæmt franska fréttamiðlinum Le Monde. Það þýðir að málið gæti komið til umræðu í neðri deild þingsins, þótt það sé ekki sjálfgefið.
Hörð afstaða gegn innflytjendum
Fréttastöðin CNews er í eigu samstæðu milljarðamæringsins Vincent Bolloré og er oft nefnd svar Frakklands við Fox-sjónvarpsstöðinni. Stöðin er þekkt fyrir pólitíska orðræðu sem flokkast utarlega á hægri vængnum en fréttamenn hennar taka afar harða afstöðu gegn innflytjendum.
Þá hafa umdeild mál tengst CNews, til að mynda þegar frönsk stjórnvöld vísuðu rússneskum álitsgjafa hennar, Xeniu Fedorovu, úr landi fyrir að nýta sér miðilinn til að breiða út áróður rússneskra stjórnvalda.
Sögð kynda undir ofbeldi
Undirskrifarlistinn var settur af stað í júní en fjöldi undirskrifta jókst hratt eftir árás sem framin var 23. október þegar Frakki af kongóskum uppruna var myrtur og sjö aðrir særðir, þar af eitt barn.
39 ára gamall maður var handtekinn fyrir morðið en hann sagðist hafa beint spjótum sínum að einstaklingum sem virtust vera múslímar, afrískir eða frá Norður-Afríku. Tilefni árásarinnar hefur verið spyrt við orðræðu miðla á borð við CNews.
Sjónvarpsstöðin hafnar því að hún kyndi undir hatursorðræðu heldur segist hún standa vörð um málfrelsið.