RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,1°C
Stykkishólmur: 5,4°C
Ísafjördur: 6,7°C
Blönduós: 5,3°C
Akureyri: 6,6°C
Egilsstadir: 4,9°C
Höfn: 5,6°C
Selfoss: 3,8°C
Hveravellir: 0,4°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
,,Ég hafði enga trú á því að ég gæti eignast eðlilegt líf"

,,Ég hafði enga trú á því að ég gæti orðið edrú. Ég hafði enga trú á því að ég gæti eignast eðlilegt líf. Ég hef fengið að sjá það yfir tímann að ég get það og er búinn að eignast yndislegt líf. Fá að ferðast um heiminn og gera ótrúlegustu hluti sem mig óraði ekki fyrir," segir Ingólfur Snær Víðisson. Við kynnumst Ingólfi Snæ í þriðja þætti Svona er lífið á RÚV í kvöld.

Ingólfur hefur helgað starfsferil sinn jaðarsettum hópum. Hann starfar fyrir Afstöðu félag fanga og hefur unnið með heimilislausum og fyrir Barna- og fjölskyldustofu. Hann á að baki mikla reynslu sem hann nýtir í störfum sínum. En leiðin þangað var ekki greið.

Þegar Ingólfur var 14 ára var hann orðinn munaðarlaus, móðir hans lést þegar hann var um fjögurra ára og faðir hans þegar hann var 14 ára. ,,Mín minning af mömmu minni sem barni er bara af því að hugsa um hana sem engil," segir hann.

,,Pabbi deyr síðan þegar ég er 14 að verða 15. Man mjög vel eftir því. Það var alveg mjög mikið áfall." Ingólfur á góðar minningar úr æsku. ,,Ég og systir mín fengum allt sem við vildum og vorum algjörar frekjudollur. Ég er mjög þakklátur fyrir mína barnæsku. Ég fékk mjög mikið sem aðrir fengu ekki. Þetta voru mjög góðir tímar framan af. Fallegar minningar." Mikið hafði gengið á í lífi Víðis, föður Ingólfs. Valgeir Víðisson, hálfbróðir Ingólfs, hvarf sporlaust árið sem Ingólfur kom í heiminn. Faðir hans barðist fyrir réttlæti í málinu sem er enn óupplýst.

Ingólfur Snær Víðisson var munaðarlaus aðeins 14 ára. Unglingsárunum eyddi hann á fósturheimilum og í úrræðum barnaverndar þar til hann var dæmdur í fangelsi 17 ára. Hann sneri lífi sínu við og hefur helgað starfsferil sinn því að hjálpa ungmennum.

,,Hann var búinn að ganga í gegnum mikið í sínu lífi. Hálfbróðir minn hverfur sporlaust, tengt við fíkniefni, undirheima, það er bara öruggt að hann var látinn hverfa og það gerist þegar ég er í maganum á mömmu minni, '94. Svo náttúrlega missir hann mömmu þarna. Auðvitað hafði hann gengið í gegnum mjög mikið. Það tók mikið á hann og maður fann það alveg þegar hann var að minnast þeirra. Þegar við vorum að fara upp í kirkjugarð og svona, þetta var oft erfitt og þungt en ég vil meina að þetta hafi líka kennt honum að sýna tilfinningar sem menn af hans kynslóð voru ekkert að sýna. Mér var mikið sagt að hann elskaði mig, það var mikið tekið utan um mig, ég er alinn upp við faðirvorið á hverju kvöldi. Hann kenndi mér mjög mikið af góðum grunngildum," segir Ingólfur.

Áður en faðir hans lést var Ingólfur byrjaður að fikta við vímuefni. Næstu árum eyddi hann á hinum ýmsu fósturheimilum eða úrræðum á vegum barnaverndar þar til hann var dæmdur í fangelsi 17 ára gamall.

,,Ég vissi ekkert hvað biði mín. Og hvað ég var að fara inn í. Þetta eru nýjar aðstæður," segir hann um það þegar hann kom fyrst á Litla-Hraun.

,,Þetta er miklu stærra heldur en öll önnur fangelsi. Miklu meira um að vera. Svo hægt og rólega aðlagast maður bara öllum aðstæðum sem maður er í. Þessi staður er upphafið að mínum bataferli. Þetta er mjög blendið að vera hérna. Bæði lærir maður helling, af því minn bakgrunnur er þannig, ég lærði bara að elda hérna meira. Fór aðeins í skóla, gerði alls konar. En á sama tíma að vera í fangelsi er ákveðið umhverfi sem maður á ekkert að vera í. Við erum samfélag manna sem hafa villst af leið. Allir saman og þetta getur verið alls konar."

Ingólfur komst á beinu brautina nokkrum árum síðar eftir að hafa kynnst unnustu sinni og foreldrar hennar ákváðu að gefa unga parinu séns og leyfa þeim að búa í lítilli íbúð í húsinu þeirra. Ingólfur hefur undanfarin ár unnið með jaðarsettum hópum í samfélaginu, börnum sem dvelja á unglingaheimilum líkt og hann gerði, föngum og svo heimilislausu fólki.

Ingólfur Snær Víðisson var munaðarlaus aðeins 14 ára. Unglingsárunum eyddi hann á fósturheimilum og í úrræðum barnaverndar þar til hann var dæmdur í fangelsi 17 ára. Hann sneri lífi sínu við og hefur helgað starfsferil sinn því að hjálpa ungmennum.

Í þætti kvöldsins af Svona er lífið fylgjum við Ingólfi eftir inn á Litla-Hraun og fáum að kynnast því fjölbreytta starfi sem hann sinnir og hvað það er sem drífur hann áfram. Svona er lífið er á dagskrá RÚV í kvöld klukkan 20:15.

01.11.2026 08:00


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001180
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.